Mig dreymdi svo frábæran draum í nótt að ég fór tvisvar aftur að sofa eftir að vekjaraklukkan hringdi í morgun. Ég man að vísu ekki alveg hvað var að gerast, ég var að bjarga einhverju samt, eða að reyna að halda öllu góðu, en ég man meira hverjir voru í draumnum, og jafnvel þó svo að allt væri að fara til fjandans, þá samt leið mér svo vel, því að það voru allir með mér, sumir voru stærra hlutverk en aðrir. Ég man að Hrafnkell og Magni voru eitthvað að hjálpa mér, eða þeir amk voru þarna, og það þurfti að passa að Hrafnkell væri ekki bara fyrir, en samt, hann var góður. Það var bara svo gott í draumaheiminum í nótt, vona bara að ég komist þangað aftur.
Var á fullu *hóst* að læra fyrir DET próf (pínu heimspekilegur áfangi) sem var á mánudaginn, náði vonandi að klóra mig í gegnum það. Ég meina, þetta er heimspeki, hvernig fellur maður í því (núna fell ég pottþétt, út af því að ég sagði þetta…). Nei nei ég næ þessu alveg… En já, svo var próf í hljóðfræði í dag, það var rétt slefað undir 9, þannig að ég get ekki verið annað en ánægð. Svo er annað próf á morgun, hef ekki miklar áhyggjur af því, neinei. Það er mjög hentugt að taka próf á netinu sko…
Get samt ekki sagt annað en að ég verði frekar fegin þegar síðasta prófið er búið. Ég viðurkenni alveg að þessi prófatíð var smá spark í rassinn.
Æji, ég hef ekkert að segja í kvöld. Eða amk er ég of upptekin við annað til að muna það. (Já, this lady is multitasking, yeah!)
Hehe, aðalega til að skilja eftir komment…
En gott að prófin ganga vel. Það er ágætt að hafa svona áminningu á miðri önn. Sérstaklega ef maður fær góðar einkannir
Skemmtu þér nú um helgina…fyrir mig…mohoho
Hehe… eitt skot fyrir Elvu… (í tóninum “eina skeið fyrir afa..”)
Og svo skot á Elvu: einkUnnir…
Hrafnkell saknar þín (og reyndar líka Elvu og Valdísar og barasta allra sem hann hefur hitt nánast) rosalega mikið og hann ELSKAR þig líka rosalega mikið. Stundum er vandræðalegt hvað barnið er væmið
Svo að auðvitað var hann góður við Rögnu frænkuna sína
Hehe já, Hrafnkels er líka saknað.
Mig langaði svo til að skjóta á Elvu, en hálf þorði því ekki…