Sleeping to Dream

Mér er illt í hálsinum. Ekki svona ‘hálsbólgu’ illt, heldur er eins og það sé eitthvað að safnast saman við bringubeinið. Ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir á íslensku, en Grey’s Anatomy hefur kennt mér að þetta svæði er kallað esophagus á ensku. Þetta er óþægilegt. Ég er búin að prufa að borða eitthvað og drekka eitthvað, en mér finnst bara pínu eins og það sé að versna. Þetta er líka búið að vera að pirra mig í svolítið langan tíma, eða sko, síðan… jah ég veit ekki, kannski svona um 2 leitið í dag. Æji ég veit það ekki. Þetta er bara orðið mjög pirrandi núna.

Á morgun ætla ég að elda ömmu kjúkling, þar sem Óli Ingubróðir heimtaði kvöldmat og það er komið að mér að elda. Á morgun er líka laugardagur, sem þýðir nammidagur, sem þýðir að ég verð mjög hamingjusöm, af því að mig er búið að langa í súkkulaði alla helvítis vikuna, og þar sem ég er ekki búin að borða nammi síðan helgina fyrir síðustu (og það var það eina sem ég gat borðað í heilan dag, ég var það þunn) þá finnst mér ég alveg eiga smá nammi skilið. Ekki satt?

(Smá side-note hér, alltaf finnst mér jafn gaman þegar iTunes er á shuffle og gamla FER103 verkefnið mitt fer af stað, þar sem ég babla á dönsku um gamla bæinn á Akureyri við undirspil Mika. Vekur upp skemmtilegar minningar.)

Jól. Það er miður október. Það er enginn farinn að skreyta, sem betur fer, en mér finnst eins og margir séu farnir að hugsa út í gjafir. Ég geri ráð fyrir að maður hafi einn og hálfan mánuð til að finna jólagjafir handa útlendingunum. Tvo mánuði fyrir local fólkið. Ég barasta fíla ekki jólin. Fínt að koma saman með fjölskyldunni og borða góðan mat, en mér finnst bara eins og jólin séu ekki alvöru eftir að fjölskyldan fór og dreifði sér út um allan heim. Jól eru hamborgarhryggur og brúnaðar kartöflur, stelpurnar ganga frá eftir matinn, Trivial Pursuit (eða annað borðspil). Jú, það er kannski möguleiki að fá svoleiðis jól ef maður treður sér inn hjá Valdísi og Tryggva (jú, maður gæti líka beðið fallega), en það er sjaldan sem ég sakna systra minna jafn mikið og um jólin. Ég er samt pínu hræsnari (vá asnalegt orð) þar sem ég er að plana að eyða jólunum einhverstaðar langt langt í burtu eftir tvö ár. Enn sem komið er, amk. En ég ætlaði líka að eyða síðustu jólum út í heimi…

Jæja, ég hef ekkert voða merkilegt að skrifa, nema jú, I’m totally kicking my sisters’ asses in blogging!! Face! (Út af því að ég get engan vegin sagt þetta á íslensku… :P )

Published in: on October 16, 2009 at 23:13  Comments (5)  

The URI to TrackBack this entry is: http://ragnasteins.wordpress.com/2009/10/16/sleeping-to-dream/trackback/

RSS feed for comments on this post.

5 CommentsLeave a comment

  1. Esophagus er vélinda (rörið sem liggur niður í maga). Annars er það barki og svo berkja sem er hægt að ná sér í bólgu í er maður fær slæmt kvef. Ég hef reyndar fengið svona illt í vélindað en það var eftir átkeppni þar sem ég þurfti að borða 100 g af súkkulíki (ljóst), 1 lindubuff og litla kók (held ég, hálfslítra var líklega ekki komin þá). Súkkulíkið fór niður óbráðnað sem rispaði skemmtilega og varð til þess að ég lenti í 4ða sæti af 20 ;)
    En jú, þú ert að mala okkur í bloggdugnaði :)

  2. Viltu gera ömmu kjúkling fyrir mig þegar ég kem í heimsókn? :)

    En ég fór að pæla í einu víst þú minntist á FER…átt þú nokkuð myndbandið sem við gerðum í Frakklandi? mig langar alveg sjúklega mikið að sjá það aftur

  3. hehe já, ég skal gera það. Og nei, ég á ekki það myndband, þó svo að mér finnst eins og ég hafi tekið copy af því áður en við skiluðum því inn. Ég á hinsvegar myndbandið sem við gerðum í ensku í 4. bekk, fyrir Árnýu.

  4. Hehe já ég á líka enskumyndbandið ;) gaman að horfa á það aftur. En ég er mikið að pæla í að prófa að tala við Guðjón og athuga hvort hann eigi afrit af þessu myndbandi…mig langar svo að eiga það :)

  5. ætlaði einmitt að fara að þýða ösofagus sem vélinda:)


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.