Awake

Þetta blog er farið að verða einhverskonar drauma dagbók. Það eina sem mér dettur í hug að skrifa hérna er það sem mig hefur dreymt nýlega, eitthvað sem situr sérstaklega í mér eftir nóttina.

Um daginn dreymdi mig að það var maí og ég ákvað að skreppa með mömmu og pabba til útlanda svona rétt fyrir prófin og áður en ég byrjaði að vinna aftur. Ég man ekki hvert við fórum, en við gistum á alveg ágætu hóteli. Svo allt í einu vorum við á Húsavík og hótelið var þar sem bílaleigan er. Ég skrapp niður út af því að ég þurfti að skreppa aðeins í sjoppu og ég skrapp í sjoppuna sem var í bílaleigunni fyrir langa löngu. Nema hún var alveg spegluð… Mig minnir að þar hafi ég hitt Erlu frá Hvalasafninu, og hún sagði mér hversu vel gengi með nýju sjálfboðaliðana og hvað hún hlakkaði til að ég byrjaði að vinna (sem var svo seinna þennan dag), og ég man sérstaklega eftir því að ég minnti sjálfa mig á að ég þyrfti að taka frí svo að ég gæti skroppið í lokaprófin. Þegar ég vaknaði þá var ég svo afskaplega fegin því að önnin væri að klárast, nema svo mundi ég að það er bara fyrri önnin sem er að klárast. Það er alveg heil önnur önn eftir þangað til að ég kemst aftur á safnið mitt.

Safnið virðist vera frekar framarlega í huga mér, því mig dreymdi líka annan draum um safnið í síðustu viku. Málið var að ég var að gera eitthvað verkefni með Elísabetu sem var með mér í HA, og við fórum til Húsavíkur til að klára það. Við löbbuðum niður á hafnarsvæðið og ég ætlaði að skreppa rétt aðeins að kíkja á safnið til að hitta nýju sjálfboðaliðina og Elvu systur mína, sem var einmitt líka að vinna þar. Þegar ég svo kom inn voru tveir útlendingar við afgreiðsluborðið og þrír Íslendingar, þ.á.m. Elva. Þetta var allt skemmtilegt fólk og svoleiðis, en ég man að ég vonaðist til þess að þessir Íslendingar ætluðu ekki að vera þarna lengi, því annars gæti ég ekki unnið þarna. En það var gaman að heimsækja þau, því ég þurfti aðeins að hjálpa þeim og svoleiðis, meira að segja Elva kunni ekki alveg handtökin þarna…

Svo í nótt dreymdi mig að ég var á einhverju ferðalagi með mömmu og pabba, við vorum að keyra um allt (í dökkum jeppa) og fórum líka í sund með Magna og Hrafnkeli. Svo man ég að ég kíkti á snúruna og sá að lakið mitt og rúmfötin mín voru brún. Alveg ógeðslega brún. Ég varð svo reið við mömmu og pabba að þau skildu setja rúmfötin mín með einhverju sem mundi lita þau í þvott. Og það versta var að þau skildu ekkert af hverju ég var svona reið út af þessu. Ég var í geggjaðri fílu þegar við héldum áfram að keyra. Svo enduðum við við einhvern bústað eða eitthvað hús og þar inni var alveg fullt af fólki sem var á leiðinni til Englands í háskóla. Mest samt krakkar sem voru með mér í Hafró, nema Villi formaður var þarna líka. Það var einhver leikur í gangi, þar sem fólk skipti sér upp í lið, og það voru flöskur á einum veggnum, sem liðsmenn áttu svo að festa poka við. Það eina var samt að flöskurnar tilheyrðu allar sínum skóla í UK og fólk mátti ekki setja poka utan um flösku sem var hærra á listanum en hæsti skólinn sem það komst inn í. T.d. voru Oxford og Cambridge efst á listanum og þeir sem komust inn í þá skóla máttu setja poka utan um allar flöskurnar. Ég og Villi vorum saman í liði og við bæði höfðum fengið inn í Cambridge, en þar sem ég var svolítið sein að átta mig á þessu öllu (ég var enn svo reið) þá er ég ekki alveg viss hvernig okkur gekk. Ég vaknaði áður en úrslitin voru kynnt.

Já, drauma heimurinn er svo sannarlega skemmtilegri en hið daglega líf. Annars er bara það í fréttum að við Inga rústuðum prófinu í dag, og okkur gekk bara mjög vel í prófinu í gær (og fólk sem fær lágt í þessum prófum eru bara frekar dens, þar sem prófin eru tekin á netinu og það er ekkert sem bannar fólki að hafa bækur og glósur fyrir framan sig). Ég er samt pínu stressuð yfir því að vera ekki stressuð fyrir lokaprófin. Ég hef bara örsjaldan orðið stressuð fyrir próf… Ég held samt að næsta önn verði aðeins meira skipulögð og minna hangs. Já, segjum það bara :)

Já og svo er jólaóskalistinn bara á sínum stað, löngu uppfærður.

Advertisement
Published in: on November 25, 2009 at 21:20  Comments (2)  

The URI to TrackBack this entry is: http://ragnasteins.wordpress.com/2009/11/25/awake/trackback/

RSS feed for comments on this post.

2 CommentsLeave a comment

  1. Já, þetta safn situr sko í manni! Mér dreymdir ennþá við og við að ég sé að vinna þarna. Úúú núna langar mér einmitt aðeins að kíkja við!
    En ég vona að prófin gangi þokkalega hjá þér og stressleysið sé bara út af því að þú veist að þú munt rúlla þessu upp :)

  2. Fyrst: þig dreymir (ekki þér), og annað: ég geri ráð fyrir að þú ætlaðir að skrifa dreymir, frekar en dreymdi, þegar mér sýnist þú hafa blandað orðunum saman.

    Kannski er mig búið að dreyma safnið svona mikið út af því að ég hef verið að bíða eftir desemberuppótinni (sem ég fékk í dag :) )

    Ég stórlega efast um að stressleysið sé út af því að ég sé að fara að rúlla þessu upp, þar sem ég veit að ég mun ekki ná svo langt, en ég er samt nokkuð viss um að ég sé með örugga fimmu (sjö-níu-þrettán)


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.