Midnight Sun

Ég hata að klára bækur. Ég þoli það ekki. Þetta er helvítis vítahringur, ef ég finn bók/bækur sem mig langar til að lesa og ég kemst alminnilega inn í söguþráðinn then there is no turning back, ég fresta öllu svo að ég geti lesið. Ég veit að ég mun ekki koma neinu í verk fyrr en bókin er búin þannig að ég reyni að drífa mig í gegnum hana en þegar bókin er búin þá fer ég og leita af framhaldinu. Þetta gerist líka við þáttaraðir. Ég bara get ekki hætt. Svo þegar ég er búin með söguna og aukaefnið og allt þá er ég bara svo tóm.

Ég fann Twilight hljóðbókina á youtube fyrir tæpum tveim vikum síðan og ég downloadaði því til að hlusta á í ræktinni. Svo fór ég að hlusta á bókina bara heima út af því að mér leiddist. Svo fór ég að vaka yfir bókinni. Svo kláraði ég hana og ég byrjaði á næstu, New Moon. Ég kláraði hana og byrjaði á Eclipse. Þetta gerði ég þegar ég vissi að það væri gáfulegra að læra fyrir sálfræðipróf. Ég skrópaði í skólanum til að læra fyrir sálfræðipróf eða til að sofa (vegna þess að ég vakti alla nóttina til að hlusta á bókina) og samt náði ég ekki að lesa meira en þrjá kafla af fjórum fyrir prófið vegna þess að það eina sem ég gerði var að hlusta á Eclipse og svo síðustu bókina, Breaking Dawn. Ég kláraði síðustu bókina svo á föstudaginn og jafnvel þó svo að þriðja bókin og stór hluti fjórðu bókarinnar voru bara fáránlegir og klisjukenndir þá samt var ég ekki komin með nóg. Ég downloadaði fyrstu 12 köflunum af ókláraðri bók sem lak á netið í sumar, sem segir frá fyrstu bókinni bara frá öðru sjónarhorni. Ég vil svo mikið að höfundurinn klári bókina því að ég er ekki búin að fá nóg af Edward. Og ég er ekki búin að fá nóg af Alice og öllum hinum karakterunum í bókinni.

Oft þegar ég les bækur þá langar mig rosa oft til að taka upp penna og skrifa athugasemdir, hvað mætti fara betur, hvað þarf að útskýra betur, hverju má sleppa. Mig langar pínu að læra ensku (bókmenntir og creative writing) og fara út í bóka editing. Ég pældi líka í þessu fyrir ári síðan (ég þoli ekki hvernig pælingarnar fara í hringi!) En ég vil samt bara enskar bækur. Ég fíla íslenskar bókmenntir ekkert rosalega, veit ekki hvað það er en mér finnst þær oft vera eitthvað svo try hard. Ég byrjaði á einhverri bók um daginn og uppskriftin fyrir Da Vinci Code skein svo berlega í gegn að ég lagði hana frá mér eftir aðeins fjóra kafla. Ég hef byrjað á nokkrum bókum Arnalds Indriðasonar og ég var ekkert rosa hrifin. Síðasta íslenska bókin sem ég man eftir að hafa lesið og líkað vel við var Saga af stúlku eftir… Mikael Torfason?? Já jú, það er hann.

Ég hata næstu daga út af lífinu. Núna mun það koma algjörlega niðrá mér þetta hugarástand sem ég hef verið í síðustu daga og vikur. Á morgun þarf ég að rumpa af einu EIR verkefni sem hefur eiginlega verið ein stór mistök frá upphafi, það verður kraftaverk ef maður nær að klóra út einhverja sæmandi einkunn. Svo á miðvikudaginn er próf í áfanga sem hefur farið inn um annað og út um hitt (mér finnst þetta oft vera rosa miklar endurtekningar og common knowledge, en maður þarf víst að kunna einhver heiti á hugtökum og drasl) og ég á svo erfitt með að vera bara ekki alveg sama um það. En ég verð að ná 4,8 í þessu prófi til að ná áfanganum. Svo þarf ég helst að vera dugleg að mæta í skólann.

Oh, ég vissi alltaf að það væri ekki rétt að sætta sig við að fara í skóla. Ef ég gæti bara gert ekkert annað en hangið heima, sofið og lesið þá væri ég ánægð.

Published in: on March 2, 2009 at 03:11  Leave a Comment  
Tags: , , , , ,

Hook Me Up

Oh, ég skil ekki hvernig þetta gerist alltaf hjá mér!! Eða jú, ég skil það alveg, ég er of löt!

Einhvernvegin nær tíminn alltaf að læðast upp að mér og áður en ég veit af þá er stafli af verkefnum sem ég þarf leysa og próf í aðsigi. Fyrst er maður ný byrjaður og það er ekkert svo erfitt eða stressandi að vera í skóla, maður er ekkert að kippa sér upp við það að maður er ekki alveg búin að klára kaflann fyrir tímann. Svo kemur próf og maður fær panic kast þegar maður kemst að því að það tekur lengri tíma en maður hélt að lesa alla þessa kafla. Svo þegar prófið er búið þá slakar maður á, er ekkert að flýta sér að lesa næstu kafla því það er svo langt í næsta próf. Svo byrja nokkur verkefni hægt og rólega, maður er ekkert að flýta sér, maður hefur nægan tíma og svo BÚMM! Tvö verkefni (annað er reyndar umfangsmeira en það ætti að vera, finnst mér amk) og próf í sömu vikunni! Og einhvernvegin tókst letihaugnum að klára tvær bækur um helgina og hvorugar tengjast náminu á nokkurn hátt :(

Þegar ég kláraði seinni bókina í nótt fékk ég ógeðslega mikið samviskubit. Ég á eftir að lesa tvo og hálfan kafla fyrir prófið á fimmtudaginn og svo þarf ég að gagnrýna smá fyrir hópaverkefni sem við eigum að skila á miðvikudaginn (hópaverkefni sem mér líst ekki vel á, bæði út af hópnum og út af því að þetta er fáránlega erfitt og tímafrekt verkefni miðað við að það gildir bara 10%… það átti upphaflega að taka tvo daga en svo var skilafresturinn lengdur þannig að það varð vika) og svo þarf ég að vesenast meira í viðtalsverkefninu sem á að skila fyrir mánudaginn, þetta er hópaverkefni og mér tókst loksins að tína saman nægt fólk til að mega teljast hópur og svo heyrist ekkert meira frá fólkinu, ég veit ekki einu sinni hvernig tvennt í hópnum lítur út! Mér líkar ekki vel við hópaverkefni núna og ég veit að ein helsta ástæðan er út af því að kennararnir nenna einfaldlega ekki að fara yfir allt of mörg verkefni.

En að betri fréttum, ég fékk út úr prófinu í aðferðafræði á föstudaginn og ég fékk 8 :D Ég fékk alveg í magann þegar kennarinn byrjaði að tala um það fyrir viku síðan að hún væri ekki sátt við útkomuna úr þessu prófi og að við (nemendurnir) hefðum ekki verið að taka námið alvarlega. En svo fékk ég einkunnina og var ekkert smá sátt. Er núna í topp 7 í bekknum :)

Published in: on February 23, 2009 at 11:27  Leave a Comment  
Tags: ,

Untouched

Ó hvað það fer í taugarnar á mér trefillinn hjá kennaranum. Mér fannst eins og hann hefði verið frekar jafn en núna er hann svo ójafn og mig langar svo mikið til að labba upp að henni og laga.

Ég hef smá samviskubit yfir því hversu lítið ég lærði um helgina. Þriggja daga helgi og ég las ekki neitt. Ég tók fulla tösku af bókum með mér heim til m&p til að lesa eitthvað en nei, ég eyddi öllum tímanum í tölvuleik. Góð. Ég samt hef alltaf vitað það að ég get ekki lært þegar ég er heima í sveit. Gerði oft þau mistök að fara heim fyrir próf í MA og lærði svo ekki neitt. (Og það eru bara sálfræðilegar ástæður þar að baki sko!) Og það versta er að ég nenni eiginlega ekki að lesa neitt á eftir. En ætli maður reyni ekki að lesa eitthvað. Eftir hádegismat og smá lúr ;)

Ég hef samt eiginlega ekkert uppbyggilegt að segja. Mig langaði bara aðeins til að tjá mig…. Ég er farin að hlakka pínu til afmælishelgarinnar (ekki afmælisins sjálfs, enda plana ég að vera þunn þá), vonandi hefur maður tækifæri til að safna saman gellunum þarna fyrir sunnan (þið gellur hérna fyrir norðan eða austan megið alveg drífa ykkur þangað ef ykkur langar að vera memm), það er nefnilega vísindaferð. Dagsetningarnar sem ég sá gefa til kynna að það verður lagt af stað á fimmtudegi og komið til baka á mánudegi, en ég er ekki alveg viss hversu áreiðanlegar þær upplýsingar eru. Þetta verður (vonandi) svakaleg helgi og ég sé fram á að þurfa að heimsækja ríkið eitthvað aðeins.

Published in: on January 19, 2009 at 11:38  Comments (5)  
Tags: , , , , , , , , , , ,

Cold Desert

Kominn tími á blogg? Já ég held það bara. Og vissulega er eina skiptið sem ég hef nennu í að blogga þá er ég í skólanum :S En það eru frímínútur og ég er búin að hugsa um að blogga í alveg dágóðan tíma. Annars verð ég að segja að ég er mjög sátt við kommentaflóðið á síðustu færslu!

Jæja, fyrsta alvöru vikan er á enda (því ég er í fríi á föstudögum) og þetta leggst svona misvel í mig. Hópurinn sem ég er með í aðferðafræðinni er bara fínn, svona ennþá þá hef ég bara flotið með (feimni) og þær alveg hjálpa mér að yfirstíga feimnina, sem er bara frábært. Ég er búin að vera þokkalega dugleg líka að lesa, byrjaði um daginn að fara yfir efnið eins og sálfræðibókin segir að maður eigi að fara yfir efnið en ég held að mér finnist þægilegra að lesa kaflann eftir tímann, því þá skil ég betur kaflann og mér finnst þetta yfir höfuð áhugaverðara þegar ég er komin með smá grunn. Ég fann þetta eiginlega mjög vel þegar maður las Hamlet í 4.A og líka í rauninni þá lenti ég oft í því að mér fannst sumar bækurnar frekar áhugaverðar þegar ég var að lesa þær helgina fyrir próf…

Ég fór í fyrsta sálfræðitímann á mánudaginn og ég fékk algjört stresskasst. Eftir tímann fór ég gráti nær niður á Glerártorg, keypti mér herðatré (út af því að mig vantaði svoleiðis) og svo gommu af nammi og gosi. Þegar ég kom heim þá var mér farið að líða aðeins betur og ég borðaði nú ekki allt nammið mitt. Ég er svo búin að taka það námskeið í sátt, ég er búin að heyra fullt af fólki sem ætlar ,,bara” að lesa sálfræði bókina, ekki hinar bækurnar, eða lesa bara glósurnar og svoleiðis. Þannig að námið er ekki alveg jafn alvarlegt og kennararnir eru búnir að segja (jú, ég veit að þetta er alvarlegt og þannig, en þetta er ekkert til að panica yfir). 

Eigindlegar rannsóknir hljóma bara alveg ágætlega, svolítið mikið af greinum sem við þurfum að fara sjálf og ljósrita, en svo er fullt af verkefnum sem verða eflaust áhugaverð þó svo að þau ýti undir feimnina. Og bæ ðe vei þá er það ekki eins og að smella fingrum að komast yfir feimni og ,,láta sig hafa það.” Málið við feimni er það að maður getur ekki látið sig hafa það án þess að fá stresskast dauðans og oft er það þannig að þegar maður getur hugsað sér að láta sig hafa það þá er momentið farið. Survival of the fittest, það eru þeir sem eru ekki feimnir sem láta raddir sínar heyrast og láta sig hafa það. Ef þú lætur þig hafa það þá ertu ekki full on feimin!

Ég er oft mjög opinská á blogginu mínu og á facebook, en það er algjörlega af því að ég get tekið minn tíma í að skrifa það sem ég vil segja, það kemur ekki hálvitalega út eins og kemur stundum fyrir þegar maður er í alvöru samræðum. Ég held að það séu tvær manneskjur í öllum heiminum sem ég get sagt nákvæmlega hvað sem er, orðað það hvernig sem er og ekki liðið eins og hálvita. Þegar ég tala við alla aðra þá þarf ég að hugsa vel um það sem ég ætla að segja og oft ef ég tek sénsinn og byrja að segja eitthvað sem ég er ekki alveg viss um hvernig endar þá panica ég þegar ég átta mig á því og vonast til þess að ég komi einhverju vitrænu út úr mér. Þetta er alvarlega heftandi ástand að vera svona feimin. Við Inga erum mjög svipaðar að þessu leiti og þegar ég áttaði mig á því að eina fólkið sem við töluðum við úti í Bretlandi var fólk sem við ætluðum að leigja hjá og fólk í afgreiðslu þá var ég miður mín. Jú, við töluðum við kannski tvær eða þrjár manneskjur sem við deildum herbergi með. Það er ekki eins og ég vilji vera svona feimin og félagslega heft, en það þarf bara svo rosalega drastískar breytingar til að ég geti mögulega komist yfir þetta. Og ég verð að segja að ég hef farið framförum á síðustu fjórum árum.

Já, þetta blogg átti að vera um námið mitt en það hefur breyst aðeins… Bara svona í lokinn (út af því að ég er búin að tala um öll hin námskeiðin) þá held ég að upplýsingarýnið verði ömurlegasta fagið. Einhverskonar heimspekilegur áfangi, sem mér finnst svosum áhugavert þannig séð, en heimspeki er oft of freðin til að ég skilji hana, eða þ.e. þegar annað fólk er að tala um eitthvað í heimspekilegum tóni þá finnst mér ég freðna upp og vera með IQ 20…

Mean – Median – Mode

Ég sit hér í stofu 14 í húsi HA á Þórunnarstræti og er að jafna mig eftir fyrsta tímann í EIR (eigindlegar rannsóknaraðferðir) og það eru góðar 20 mínútur í næsta tíma. Ég verð að segja að ég er farin að hallast að því að þetta nám sé ekki alveg sniðið fyrir mig. Ég er svo ofsa ofsa feimin að það er ekki eðlilegt. Eða amk held ég að það sé óeðlilegt. Það er ekkert mál fyrir mig að skrifa um allt og ekkert á bloggið og á facebook en það að þurfa að tala við aðrar manneskjur sem ég þekki ekki neitt er alveg terrifying! Mér finnst alveg nógu slæmt að ég þarf að kynnast fólki innan bekkjarins (sem btw virðist sem allir þekki alla nú þegar (líka þeir sem voru að byrja núna)) og gera eitthvað hópaverkefni í aðferðafræði, en svo þarf ég að gera verkefni alveg ein þar sem ég þarf að tala við Jón og Guggu út í bæ. Ef ég gæti bara lesið heima og hlustað á fyrirlestrana og skrifað einhverjar skýrslur þá væri þetta eitthvað fyrir mig. Mig langar svo til að naga fínu löngu neglurnar mínar af spenningi núna. Meira að segja bækurnar eru búnar að segja að fólk verði að komast yfir feimnina til að geta gert eitthvað af viti (það var nefnilega það sem kennarinn sagði í morgunn. Og hann vill ekki að fólk sé að senda honum e-mail, fólk á frekar að hringja og ef fólk sendir e-mail þá mun hann hringja til baka. Fokk, ég hata að tala í síma!).

En það eru góðir hlutir líka. Bækurnar sem ég er byrjuð á hljóma mjög vel (jú vissulega, pínu þurrar, en þær fjalla um hluti sem ég hef áhuga á). Aðferðafræðin er ekki scary og þó svo að ALM bókin sé þykk og ógnvekjandi þá býður hún upp á spennandi hluti. Líka eina hópaverkefnið í AÐF er að byrja og það var innifalið að hver hópur yrði að hafa einn eða tvo nýnema, þannig að maður er ekki alveg screwed. Og vissulega hljóma verkefnin í EIR alveg þokkalega spennandi, svona ef maður horfir vísindalega á þetta. Og við eigum að horfa á Silence of the Lambs fyrir EIR. Og kennarinn í AÐF hljómar eins og einhver sem talar inn á barnaefni (eða amk barnaefnið fyrir svona 5-10 árum).

Jájá, þetta verður spennandi…

Whatever You Like

Já já, þetta er allt að byrja. Ég er komin til Akureyrar, var ekki lengi að skella drasli ofan í töskur og ganga svo frá því í gær. Herbergið er samt frekar ópersónulegt, fyrir utan bleika lampann minn á náttborðinu (og margt dót hér og þar á borðum, blöð og tölvu drasl). Dagný tók vel á móti mér, var búin að taka frá hillur inná baði og í ísskápnum og svoleiðis. 

(Oh, það á eftir að taka endalaust langan tíma  að skrifa þetta blogg, er að spjalla á msn, hlusta á tónlist og kroppa í sár á vörinni :S)

Já, ég þurfti aðeins að snúast þegar ég kom í bæinn í gær, þurfti að kaupa netsnúru, lak á nýja risastóra rúmið (það er HUGES, amk finnst mér það þar sem ég hef alltaf bara sofið í einföldu, 120*200cm rúmi) og eitthvað af mat. Svo fór ég með Ingu í bæinn áðan, kíkti í bankann og betlaði pening, keypti bensín og svo bækur. Vó shit, stafli af nýþungum bókum kostaði alveg slatta. Get ekki beðið eftir að byrja að lesa þetta *kaldhæðni*… En ég ætla að vera dugleg að lesa þetta hlass svo að ég geti lesið eitthvað skemmtilegt líka.

Ég verð samt að segja að áðan þegar ég var að merkja bækurnar mínar (litakóðun svo að ég muni hvað er í hvaða fagi), sat hérna við litla skrifborðið mitt, þá fannst mér ég vera eins og Elva systir, hún er the ultimate háskólanemi í mínum huga… Líka með tölvuna fyrir framan mig, útvarpið í gangi, í einhverskonar setustellingu sem mér finnst vera ekta hún. 

Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að skrifa hérna, en ég man það ekki núna. Endilega verið samt dugleg við að kommenta!

Jungle Drum

Gleðileg jól öllsömul. Þessi jól voru by far skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Mér finnst samt eins og maður hugsi á hverju ári ,,þessi jól verða nú skrítin…” út af því að einhver var að bætast við í fjölskylduna eða einhver systirin ætlaði að vera annarstaðar um jólin, en nú vorum við bara þrjú. Það var samt alls ekki of mikið af mat (er einhvern tímann hægt að elda of mikið af hamborgarhrygg??). Og eftir kvöldmat fékk ég rétt að aðstoða við að ganga frá matnum, eins og venjulega (í staðin fyrir Elvu planteraða fyrir framan uppþvottavélina var mamma komin í staðin, ég gat ekki farið ein í að ganga frá!). Svo hrúguðum við pökkunum á stofuborðið og hentum pökkum í hvort annað. Það var síðan mjög erfitt að fá mömmu til að opna restina af pökkunum eftir að hún tók upp fartölvuna sem hún fékk frá pabba.

Ég var mjög sátt við jólapakkana þetta árið, ég fékk þrjár bækur (er búin að lesa tvær (önnur var samt svo pínu lítil, maður var ekki lengi með hana)), konfekt og bolla og sturtu dæmi. Svo fékk ég ilmvatn í ,,möndlugjöf” sem ég er enn að venjast, en það er voða bleikt og lyktar alls ekki illa. Ég er samt orðin svo háð bókum þessa dagana, enda líka ágætt að drífa sig í gegnum bækurnar sem mig langar til að lesa áður en ég festist við skólabækurnar aftur. Það er bara svo ótalmargt sem mig langar til að lesa núna en ég gleymi því jafnóðum ef ég skrifa það ekki niður.

Ég fór í bíó með Ingu og Kolfinnu um daginn, við fórum á Yes Man. Hún var bara mjög góð, ótrúlega fyndin og létt. Það er alveg óneitanlega þægilegra að horfa á myndir í bíói en heima í tölvunni, eða í sjónvarpinu. Þegar ég er inni í bíósalnum þá hugsa ég um eiginlega ekki neitt annað en myndina á tjaldinu. Ég gleymi alveg stað og stund. Þegar ég er heima og horfi á bíómynd eða þætti þá verð ég helst að hafa eitthvað annað að gera. Ég er mjög oft að skoða eitthvað annað á netinu (get samt ekki lesið neitt því þá missi ég þráðinn), fer í tetris eða bubbles. Mig langar rosalega til að taka aftur upp á því að prjóna, en ég veit ekki hvað það ætti að vera. En þessi athyglisbrestur veldur því oft að ég naga neglurnar (þær eru reyndar ótrúlega fínar núna, alveg eins og þær voru þegar við vorum í London).

Eftir áramót byrjar svo skólinn, 7. janúar… Verð svo fjóra daga vikunnar í skólanum, verð væntanlega í fríi á föstudögum. Ég er svona aðeins farin að leita að húsnæði á Akureyri, er samt ekkert að flýta mér, en það er ekkert æðislega spennandi að hugsa til þess að fara með rútunni, fyrir utan að það er alls ekki víst að rútan fari í skólann eftir áramót. Og það kostar líka jafnvel meira en almenn mánaðarleiga á herbergi. Ég er búin að fá eitt spennandi svar við auglýsingu sem ég henti inn á dagskrain.is. Svo hef ég líka heyrt um herbergi hjá kennara úr MA sem er alveg spurning um að skoða. En ég er ekkert að hafa áhyggjur, þetta reddast.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.