Take On Me

Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf :P Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.

Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.

Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.

Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day :)

Up

Vá, ég er farin að gleyma hvaða lagatitla ég er búin að nota í færslurnar mínar, ég þurfti að kíkja til baka til að athuga hvort að ég væri búin með þetta lag!

Ég er ógðeslega þreytt núna og er búin að vera svona í allan dag. Vanalega þegar ég er svona þá finn ég mér tíma til að taka smá kríu eða ég bara ligg í leti uppi í rúmi. Ég er mjög oft frekar mygluð þegar ég er í svona ástandi. En ekki í dag :) Ég er búin að vera svo dugleg í dag að ég er svo stolt af sjálfri mér! 

Fyrst: ég kláraði kaflann eins og ég ætlaði mér að gera í gær (sko kaflann sem við vorum að stúdera í dag, ég hef ekki haft orku í að klára kaflann fyrir tíma síðan ég byrjaði!). Þessi kafli var líka þokkalega áhugaverður (eins og Inga hefur fengið að heyra, ég er búin að ausa úr mínum viskubrunni í allan dag :P ), fjallaði um drauma, svefn, recreational lyf og svoleiðis. Mér finnst það áhugavert. Svo vaknaði ég í morgun klukkan 8 til að lesa kaflann á undan á meðan ég hlustaði á súper (eða ég hlustaði á súper og las svo þegar það voru auglýsingar og tónlist) og ég náði að klára þokkalega mikið fyrir klukkan 11, þá fór ég niður í Bakaríið við brúnna og fékk mér hollustu í hádegismat. Svo hélt ég af stað í skólann og ég náði að glósa alveg slatta (var samt pínu erfitt að fylgjast með því ég var svoooo þreytt).

Eftir skóla dreif ég mig með Ingu niður í Átak og við löbbuðum (Inga hljóp) í hálftíma og svo tókum við vel á vöðvunum okkar!! Hehe :P Svo þegar við vorum búnar að kæla okkur niður og teigja á þá fengum við okkur hollustu í andyrinu, nammi namm. Þegar ég kom heim var ég svo góðu skapi og það hefur ekkert dvínað síðan! Ég er búin að vesenast niður í bæ og versla í matinn og svona og ég finn alveg hvernig vöðvarnir mínir eru aumir eftir þetta púl, en mér líður svo vel. Þetta er svona rétt mátulega vont :D  

Svo held ég líka að ipodinn minn sé að deyja :( Amk er alveg svakalegt að reyna að fá hold takkann til að sleppa takinu… Það finnst mér frekar stór ókostur á svona tæki. Ég held að það sé að verða kominn tími til að fá sér nýjan.

Published in: on January 27, 2009 at 18:45  Comments (2)  
Tags: , , , , , , , , ,

Cold Desert

Kominn tími á blogg? Já ég held það bara. Og vissulega er eina skiptið sem ég hef nennu í að blogga þá er ég í skólanum :S En það eru frímínútur og ég er búin að hugsa um að blogga í alveg dágóðan tíma. Annars verð ég að segja að ég er mjög sátt við kommentaflóðið á síðustu færslu!

Jæja, fyrsta alvöru vikan er á enda (því ég er í fríi á föstudögum) og þetta leggst svona misvel í mig. Hópurinn sem ég er með í aðferðafræðinni er bara fínn, svona ennþá þá hef ég bara flotið með (feimni) og þær alveg hjálpa mér að yfirstíga feimnina, sem er bara frábært. Ég er búin að vera þokkalega dugleg líka að lesa, byrjaði um daginn að fara yfir efnið eins og sálfræðibókin segir að maður eigi að fara yfir efnið en ég held að mér finnist þægilegra að lesa kaflann eftir tímann, því þá skil ég betur kaflann og mér finnst þetta yfir höfuð áhugaverðara þegar ég er komin með smá grunn. Ég fann þetta eiginlega mjög vel þegar maður las Hamlet í 4.A og líka í rauninni þá lenti ég oft í því að mér fannst sumar bækurnar frekar áhugaverðar þegar ég var að lesa þær helgina fyrir próf…

Ég fór í fyrsta sálfræðitímann á mánudaginn og ég fékk algjört stresskasst. Eftir tímann fór ég gráti nær niður á Glerártorg, keypti mér herðatré (út af því að mig vantaði svoleiðis) og svo gommu af nammi og gosi. Þegar ég kom heim þá var mér farið að líða aðeins betur og ég borðaði nú ekki allt nammið mitt. Ég er svo búin að taka það námskeið í sátt, ég er búin að heyra fullt af fólki sem ætlar ,,bara” að lesa sálfræði bókina, ekki hinar bækurnar, eða lesa bara glósurnar og svoleiðis. Þannig að námið er ekki alveg jafn alvarlegt og kennararnir eru búnir að segja (jú, ég veit að þetta er alvarlegt og þannig, en þetta er ekkert til að panica yfir). 

Eigindlegar rannsóknir hljóma bara alveg ágætlega, svolítið mikið af greinum sem við þurfum að fara sjálf og ljósrita, en svo er fullt af verkefnum sem verða eflaust áhugaverð þó svo að þau ýti undir feimnina. Og bæ ðe vei þá er það ekki eins og að smella fingrum að komast yfir feimni og ,,láta sig hafa það.” Málið við feimni er það að maður getur ekki látið sig hafa það án þess að fá stresskast dauðans og oft er það þannig að þegar maður getur hugsað sér að láta sig hafa það þá er momentið farið. Survival of the fittest, það eru þeir sem eru ekki feimnir sem láta raddir sínar heyrast og láta sig hafa það. Ef þú lætur þig hafa það þá ertu ekki full on feimin!

Ég er oft mjög opinská á blogginu mínu og á facebook, en það er algjörlega af því að ég get tekið minn tíma í að skrifa það sem ég vil segja, það kemur ekki hálvitalega út eins og kemur stundum fyrir þegar maður er í alvöru samræðum. Ég held að það séu tvær manneskjur í öllum heiminum sem ég get sagt nákvæmlega hvað sem er, orðað það hvernig sem er og ekki liðið eins og hálvita. Þegar ég tala við alla aðra þá þarf ég að hugsa vel um það sem ég ætla að segja og oft ef ég tek sénsinn og byrja að segja eitthvað sem ég er ekki alveg viss um hvernig endar þá panica ég þegar ég átta mig á því og vonast til þess að ég komi einhverju vitrænu út úr mér. Þetta er alvarlega heftandi ástand að vera svona feimin. Við Inga erum mjög svipaðar að þessu leiti og þegar ég áttaði mig á því að eina fólkið sem við töluðum við úti í Bretlandi var fólk sem við ætluðum að leigja hjá og fólk í afgreiðslu þá var ég miður mín. Jú, við töluðum við kannski tvær eða þrjár manneskjur sem við deildum herbergi með. Það er ekki eins og ég vilji vera svona feimin og félagslega heft, en það þarf bara svo rosalega drastískar breytingar til að ég geti mögulega komist yfir þetta. Og ég verð að segja að ég hef farið framförum á síðustu fjórum árum.

Já, þetta blogg átti að vera um námið mitt en það hefur breyst aðeins… Bara svona í lokinn (út af því að ég er búin að tala um öll hin námskeiðin) þá held ég að upplýsingarýnið verði ömurlegasta fagið. Einhverskonar heimspekilegur áfangi, sem mér finnst svosum áhugavert þannig séð, en heimspeki er oft of freðin til að ég skilji hana, eða þ.e. þegar annað fólk er að tala um eitthvað í heimspekilegum tóni þá finnst mér ég freðna upp og vera með IQ 20…

Mean – Median – Mode

Ég sit hér í stofu 14 í húsi HA á Þórunnarstræti og er að jafna mig eftir fyrsta tímann í EIR (eigindlegar rannsóknaraðferðir) og það eru góðar 20 mínútur í næsta tíma. Ég verð að segja að ég er farin að hallast að því að þetta nám sé ekki alveg sniðið fyrir mig. Ég er svo ofsa ofsa feimin að það er ekki eðlilegt. Eða amk held ég að það sé óeðlilegt. Það er ekkert mál fyrir mig að skrifa um allt og ekkert á bloggið og á facebook en það að þurfa að tala við aðrar manneskjur sem ég þekki ekki neitt er alveg terrifying! Mér finnst alveg nógu slæmt að ég þarf að kynnast fólki innan bekkjarins (sem btw virðist sem allir þekki alla nú þegar (líka þeir sem voru að byrja núna)) og gera eitthvað hópaverkefni í aðferðafræði, en svo þarf ég að gera verkefni alveg ein þar sem ég þarf að tala við Jón og Guggu út í bæ. Ef ég gæti bara lesið heima og hlustað á fyrirlestrana og skrifað einhverjar skýrslur þá væri þetta eitthvað fyrir mig. Mig langar svo til að naga fínu löngu neglurnar mínar af spenningi núna. Meira að segja bækurnar eru búnar að segja að fólk verði að komast yfir feimnina til að geta gert eitthvað af viti (það var nefnilega það sem kennarinn sagði í morgunn. Og hann vill ekki að fólk sé að senda honum e-mail, fólk á frekar að hringja og ef fólk sendir e-mail þá mun hann hringja til baka. Fokk, ég hata að tala í síma!).

En það eru góðir hlutir líka. Bækurnar sem ég er byrjuð á hljóma mjög vel (jú vissulega, pínu þurrar, en þær fjalla um hluti sem ég hef áhuga á). Aðferðafræðin er ekki scary og þó svo að ALM bókin sé þykk og ógnvekjandi þá býður hún upp á spennandi hluti. Líka eina hópaverkefnið í AÐF er að byrja og það var innifalið að hver hópur yrði að hafa einn eða tvo nýnema, þannig að maður er ekki alveg screwed. Og vissulega hljóma verkefnin í EIR alveg þokkalega spennandi, svona ef maður horfir vísindalega á þetta. Og við eigum að horfa á Silence of the Lambs fyrir EIR. Og kennarinn í AÐF hljómar eins og einhver sem talar inn á barnaefni (eða amk barnaefnið fyrir svona 5-10 árum).

Jájá, þetta verður spennandi…

Whatever You Like

Já já, þetta er allt að byrja. Ég er komin til Akureyrar, var ekki lengi að skella drasli ofan í töskur og ganga svo frá því í gær. Herbergið er samt frekar ópersónulegt, fyrir utan bleika lampann minn á náttborðinu (og margt dót hér og þar á borðum, blöð og tölvu drasl). Dagný tók vel á móti mér, var búin að taka frá hillur inná baði og í ísskápnum og svoleiðis. 

(Oh, það á eftir að taka endalaust langan tíma  að skrifa þetta blogg, er að spjalla á msn, hlusta á tónlist og kroppa í sár á vörinni :S)

Já, ég þurfti aðeins að snúast þegar ég kom í bæinn í gær, þurfti að kaupa netsnúru, lak á nýja risastóra rúmið (það er HUGES, amk finnst mér það þar sem ég hef alltaf bara sofið í einföldu, 120*200cm rúmi) og eitthvað af mat. Svo fór ég með Ingu í bæinn áðan, kíkti í bankann og betlaði pening, keypti bensín og svo bækur. Vó shit, stafli af nýþungum bókum kostaði alveg slatta. Get ekki beðið eftir að byrja að lesa þetta *kaldhæðni*… En ég ætla að vera dugleg að lesa þetta hlass svo að ég geti lesið eitthvað skemmtilegt líka.

Ég verð samt að segja að áðan þegar ég var að merkja bækurnar mínar (litakóðun svo að ég muni hvað er í hvaða fagi), sat hérna við litla skrifborðið mitt, þá fannst mér ég vera eins og Elva systir, hún er the ultimate háskólanemi í mínum huga… Líka með tölvuna fyrir framan mig, útvarpið í gangi, í einhverskonar setustellingu sem mér finnst vera ekta hún. 

Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að skrifa hérna, en ég man það ekki núna. Endilega verið samt dugleg við að kommenta!

Amnesia

Takk fyrir öll kommentin fólk, ég hef aðeins betri hugmynd núna hverjir lesa það sem ég skrifa. Svo finnst mér líka svo gaman að sjá karlana sem birtast fyrir hvern einstakling inn á svæðinu mínu, þeir eru töff. Ég því miður hef ekki komist að því hvernig ég fæ þá til að birtast fyrir almenning líka. [Edit: fann það eftir frekari athugun :) ]

Úff alveg hreint frábær helgi! Við Inga brunuðum til Reyðarfjarðar til að hitta Herdísi og djamma. Færðin var bara alveg þokkaleg á leiðinni þangað og við skemmtum okkur við að hlusta á ’80s og ’90s tónlist á leiðinni. Um kvöldið fengum við dýrindis mat sem Adam eldaði, nammi nammi hamborgarhryggur. Og það var meira að segja forréttur og alles. Svo tók við drykkja og stelpustund þar sem Adam flúði staðinn til að djamma með vinnufélögum eða eitthvað svoleiðis. Við drukkum, máluðumst, slúðruðumst, trúnóuðumst og horfðumst á Ace Ventura: When Nature Calls með commentary frá Herdísi :P Þetta var bara gaman. Þokkalega vel í glasi fórum við á Café Kósí, aðal djammstaðinn á Reyðarfirði. Þar var dansað og drukkið og aumingja Herdís fékk bláan drykk yfir sig alla. Við Inga komumst að því að pikk-up línan í bænum var ,,hérna, má ég kasta fram einni spurningu….” Já þegar við heyrðum þetta í annað skiptið hlógum við að aumingja gaurnum og hann leit hálf skömmustulega út, þó svo að það sé spurning hvort að það hafi verið okkur að kenna.

Gærdagurinn var pínu þunnur, ég vaknaði með ógeðslega beinverki í mjóbakinu (mamma segir að þetta hafi verið taug að klemmast og þess vegna er ég með strengi í dag) en blessunarlega var ég laus við hausverk svona framanaf. Við Inga ,,drifum” okkur á fætur og lögðum af stað heim. Þetta dríf tók kannski 3-4 klukkutíma…. Leiðin heim var ekki alveg jafn skemmtileg, ógeðslega mikil hálka og stórhættulegur rútubílstjóri stefndu lífi okkar í hættu, en við komumst heilar til byggða. Ég var gjörsamlega uppgefin þegar ég kom heim, lagðist upp í rúm með tölvuna til að skoða blogg og þegar ég var farin að dotta yfir einu blogginu slökkti ég bara á tölvunni og fór að sofa. Klukkan var rétt rúmlega 9. Ég er heldur ferskari í dag, vaknaði mjög fersk um miðnætti, fannst ég vera algjörlega búin að sofa nóg en ákvað að sofa aðeins lengur. Vaknaði aftur klukkan fjögur í nótt en aftur fannst mér þetta heldur snemmt til að fara á fætur. Vaknaði enn einu sinni rúmlega sex og ákvað að ég nennti þessu sko ekki lengur, kveikti á tölvunni og skoðaði facebook á meðan ég hlustaði á Stephen Fry lesa Harry Potter. 

Ég verð eiginlega að ljúka þessu á að þakka Ingu og Herdísi fyrir frábæra helgi, þakka Adam fyrir frábæran mat og Herdísi aftur fyrir ógeðslega nammi góða lakkrístoppa.

Fyrsta færslan

Já, ég er að prófa þetta nýja blogg fyrst systir mín gat ekki kommentað á mbl blogginu mínu. Ég hef reyndar nokkrum sinnum hugsað um að skipta um blogg síðu, en mér fannst bara svo stutt síðan ég fékk mér mbl bloggið, en raunin er að ég hef verið þar síðan október 2006.  

Endilega látið vita hvað ykkur finnst um nýja bloggið og þið megið endilega kommenta hér við síðustu færsluna á ragnas.blog.is.

Published in: on December 13, 2008 at 18:49  Comments (1)  
Tags: , , , , ,
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.