Take On Me

Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf :P Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.

Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.

Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.

Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day :)

LoveGame

Já, það bara gengur ekkert að blogga þessa dagana. Ég er rosa lengi búin að vera alveg að fara að blogga, en svo gerist ekki neitt. Ekki það að það er fullt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Ég er ljóshærð. Alveg rosa ljóshærð (finnst mér) og hárið er eitthvað svo stutt. En ég er mjög ánægð. Ég líka er byrjuð að nota linsur annað slagið, er að venja mig við það. Ég er samt sannfærð um það að linsurnar séu aðeins of stórar, amk er það tilfinningin sem ég fæ.

Júbileringin var frábær! Það var svo gaman og svo furðulegt eitthvað að hitta alla aftur, mér fannst stundum eins og það væri ekki heill vetur síðan ég hitti þau öll, pínu eins og að stökkva eitt ár aftur í tímann. Ég er líka enn hissa á því hversu mikið ég drakk þessa daga, það var alveg ótrúlegt magn sem fór ofan í mig. Það var samt ekkert sem var eitthvað über merkilegt sem gerðist svona eftir á að hyggja, en þetta var klikkað skemmtilegt. Og pínu sorglegt þegar við tókum hvíta kollinn af.

Ég er loksins búin að sætta mig við misheppnuðu ferðina síðasta haust. Ég nefnilega áttaði mig á því um daginn að ef að ferðin hefði farið eins og áætlað var, þá hefðum við Inga ekki komið heim fyrr en rétt fyrir 16. júní, ég hefði örugglega ekki fengið vinnu á hvalasafninu og þá hefði ég ekki kynnst öllu þessu frábæra fólki sem vinnur hérna. Mér hefur fundist fólkið síðustu ár alveg verið skemmtileg, en þau sem eru núna, þau eru bara æði. Vissulega er erfitt að tala við ítölsku stelpuna þar sem hún talar ekkert voða góða ensku, og svo er svissneska stelpan sem endurtekur allt sem maður segir á meðan maður er að tala (það er virkilega pirrandi til lengdar, en hún er mjög fín). Bandarísku stelpurnar eru að keppast um það hvor getur talað meira (þær eru svo mikið æði!). Þær líka halda að hin íslenska stelpan sé ekki alveg að fatta húmorinn þeirra, þ.a.l. líkar þeim betur við mig (hah! :P ). Þær líka rífast um það hvorum hópnum ég tilheyri (team awesome eða team richous (held ég), þær eru sko í sitthvorum hópnum og við Guðrún tilheyrum hvorugum) og eru líka að reyna að sannfæra mig um að mig langi frekar að fara til Bandaríkjana að læra heldur en Bretlands. Æji þau öll sömul gera lífið aðeins skemmtilegra, tala nú ekki um vinnuna :)

Ég veit eiginlega ekki hvað meira ég hef að segja… Magni er kominn til landsins, en kemur ekki norður fyrr en í byrjun júlí. Hrafnkell og Edda koma… fljótlega :P Ég man ekki dagsetninguna, en það verður ágætt að fá þau.

Já, þetta er allt voða voða gaman. Fljótlega (vonandi) fæ ég að vita meira um háskólann, ég er ennþá númer 31 á biðlista hjá stúdentagörðunum. Við Inga ætlum s.s. þangað (nema einhver geti bent okkur á ódýrt húsnæði fyrir okkur báðar…)

Nóg í bili held ég, bis Später :)

Everlong

Já sko, annað….

Komment:

Inga: furðuleg stuð eru góð… og ekki er ég hissa á að þú ummm… relate to things I write about… :P

Edda: :)

Kå: ég er þokkalega hætt við lýðháskóla, ég væri alveg til í að fara til Dk as always en ég hugsa að það sé ekki raunhæft nema þá bara í smá heimsókn. Ég er svona 99% búin að ákveða að fara í HÍ and I wouldn’t touch psychology with a 10′ pole! Eða námið þ.e.a.s… ég hef enn alveg áhuga á sálfræði sem slíku en það er ekki séns að ég nenni að mennta mig á því sviði, er algjörlega komin með ógeð á félagsvísindum! Nei, mín leið liggur í ensku, for obvious reasons… Og varðandi birtuna, ég þoli hana ekki á morgnana, ég vil sofa og ég sef ekki vel í birtu. Og það er yfirleitt farið að birta þegar ég loksins er að sofna. But each to their own…

Já… eins og ég sagði við Ingu einhvern tíman í dag, vanalega í prófatíð þá verð ég alltaf svo pirruð við sjálfa mig yfir því að vera ekki búin að læra betur yfir önnina og ég hef yfirleitt verið bara svona þokkaleg í að læra fyrir próf og ef ég læri ekki fæ ég oftast sektarkennd (shitfokkshitfokk dæmi… ) en núna? Nei… mér gæti ekki verið meira sama. Einu einstaklings verkefnin yfir önnina (nei ókei, það var eitt þarna alveg í blá byrjun og það gekk viðbjóðslega vel) eru einu verkefnin sem ég get ekki klárað. Og mér er alveg sama. Ég á eftir að frumlesa 150 bls fyrir prófið á morgun og helst rifja upp 500 bls í viðbót… og mér er svo þokkalega sama. Ég veit að ég næ ekki einum áfanganum ef ég skila ekki verkefninu sem átti að skila í gær, og mér er sama (ég er samt að reyna að vinna í því, ég bara kemst ekki lengra en á glæru 2 (er að gera glærusýningu úr einhverri grein, glærurnar eiga að vera 20)). Ég veit ekki hvernig það er með hitt verkefnið sem ég á eftir, en það er að stefna í tvær vikur síðan ég átti að skila því þannig að ég hlýt að vera að nálgast í núllið, en ég hugsanlega næ áfanganum…

Vanalega ef að mér gengur illa í skólanum þá vil ég ekki hafa hátt um það svona opinberlega (as in einhverstaðar þar sem m&p komast að því) en mér er sama. Ég veit að ég mun skulda shit fokk mikinn pening ef ég fell í einhverjum áföngum (tala nú ekki um sál áfangann þar sem hann er 12 ECTS einingar) en mér er svo sama, þetta er peningur sem ég mun hvort eð er þurfa að borga einhvern tíman seinna, afhverju ekki að borga það bara í sumar. My motivation is going further south every day…

Ugh… annars bara nýt ég þess að vera ein í íbúðinni hér á Ak áður en ég pakka saman og segi skilið við stóra rúmið um helgina. Svo er bara viku frí áður en ég byrja á Hvalasafninu og kynnist fleiri útlendingum. Haha, fyrsta daginn er ég að vinna með Christian S og daginn eftir er ég að vinna með Christian F, áhugavert non?

Já og ég er hætt við að skreppa suður, ég nenni ekki að fara ein og nenni ekki að redda mér gistingu og bara vesen…

Jájá, back to life in denial… bara tveir dagar eftir :) (og ég vil engin “you can do it” komment, because I won’t…) (Seriously, ég er hætt að geta tjáð mig á hinu ylhýra (ljóta ljóta orð))

Never Think

Ég er búin að ákveða mig, já eða ég er búin að ákveða mig í dag, ég hef á tilfinningunni að þetta eigi eitthvað eftir að breytast því að allt breytist á endanum finnst mér.

Þegar ég er búin í skólanum ætla ég að vinna eins og mó fó og skemmta mér jafn mikið. Það stendur til að árgangurinn hittist og liggji úti rétt fyrir 16. júní, svo er náttúrulega júbíleringin þar sem maður fær að taka hvíta kollinn af (og verður ekki lengur nýstúdent :( ). Svo á ég náttúrulega 5 ára útskriftarafmæli úr Hafralækjarskóla og við ætlum að hittast og skemmta okkur. Ég nenni líklegast ekki á Hróaskeldu (kannski næst samt) en það er spurning hvort að maður skelli sér til Eyja, maður er búin að ætla sér þangað síðastliðin fjögur ár eða svo. Svo verður vonandi eitt ættarmót eða tvö.

Næsta haust ætla ég bara að spila eftir hendinni, ætla bara að vinna eins lengi og þær vilja hafa mig á safninu, svo held ég að ég bara geri eitthvað skemmtilegt. Heimsóknir til Noregs, Danmerkur og Bretlands er alveg inn í myndinni, veit um nokkrar systur sem hugsanlega vilja lána manni sófa eða dýnu. Kannski maður bara fari á couchsurfing og fari bara þangað sem hugurinn girnist ;) Ég meina, ég hafði það af í einn og hálfan mánuð í Bretlandi þegar pundið var sem hæst á bara sumarlaununum mínum, þar með talið gisting (sem er kostnaður sem gæti minnkað ef ég fæ sófapláss) þannig að ég get eflaust gert eitthvað skemmtilegt fram að jólum.

Eftir jól… hugsanlega lýðháskóli, eflaust í Danmörku. Kannski verð ég heppin og vinn í lottói og ferðast meira, eða heppin á einhvern annann hátt. Hver veit, ég ætla ekki að plana svona langt fram í tímann. Segjum bara að lýðháskóli sé plan B.

Þangað til ætla ég að byrja aftur á umsóknarferlinu sem ég fór í gegnum í fyrra sumar, ég ætla að redda mér eitt stykki IELTS eða TOEFL prófi og sækja um í ensku (bókmenntir og creative writing). Yes sir, það er planið eins og er.

En að öðrum fréttum, ég var að uppgötva það að ég er búin með 9 vikur í skólanum og eftir standa 6 vikur (7 vikur með páskafríi) þangað til prófin byrja. Oh hvað það er gott að vita að ég er svona nánast komin yfir hæðina, nú er þetta bara niður í móti. Reyndar er þessi eina og hálfa vika bara brjáluð, byrjaði á sálfræðiprófi á fimmtudaginn (fokk), þurfti svo að skila verkefni í gær (við byrjuðum á því á sunnudaginn, það var frekar misheppnað), próf á morgun (based on common knowledge en maður þarf samt að kunna hugtökin á þessi common knowledge…), klára tippaviðtal fyrir föstudaginn og gera fyrirlestur og svo flytja fyrirlesturinn á mánudaginn. Svo er viku frí fyrir næsta aðferðafræðipróf. Svo fer bara að styttast í að Valdís eigi að eiga og Edda kemur heim með sína fjölskyldu og svo (fáránlega stutt) páskafrí :D og þá er geggjað stutt í lokapróf og þessum hræðilega vetri (með nokkrum undantekningum) verður lokið.

Midnight Sun

Ég hata að klára bækur. Ég þoli það ekki. Þetta er helvítis vítahringur, ef ég finn bók/bækur sem mig langar til að lesa og ég kemst alminnilega inn í söguþráðinn then there is no turning back, ég fresta öllu svo að ég geti lesið. Ég veit að ég mun ekki koma neinu í verk fyrr en bókin er búin þannig að ég reyni að drífa mig í gegnum hana en þegar bókin er búin þá fer ég og leita af framhaldinu. Þetta gerist líka við þáttaraðir. Ég bara get ekki hætt. Svo þegar ég er búin með söguna og aukaefnið og allt þá er ég bara svo tóm.

Ég fann Twilight hljóðbókina á youtube fyrir tæpum tveim vikum síðan og ég downloadaði því til að hlusta á í ræktinni. Svo fór ég að hlusta á bókina bara heima út af því að mér leiddist. Svo fór ég að vaka yfir bókinni. Svo kláraði ég hana og ég byrjaði á næstu, New Moon. Ég kláraði hana og byrjaði á Eclipse. Þetta gerði ég þegar ég vissi að það væri gáfulegra að læra fyrir sálfræðipróf. Ég skrópaði í skólanum til að læra fyrir sálfræðipróf eða til að sofa (vegna þess að ég vakti alla nóttina til að hlusta á bókina) og samt náði ég ekki að lesa meira en þrjá kafla af fjórum fyrir prófið vegna þess að það eina sem ég gerði var að hlusta á Eclipse og svo síðustu bókina, Breaking Dawn. Ég kláraði síðustu bókina svo á föstudaginn og jafnvel þó svo að þriðja bókin og stór hluti fjórðu bókarinnar voru bara fáránlegir og klisjukenndir þá samt var ég ekki komin með nóg. Ég downloadaði fyrstu 12 köflunum af ókláraðri bók sem lak á netið í sumar, sem segir frá fyrstu bókinni bara frá öðru sjónarhorni. Ég vil svo mikið að höfundurinn klári bókina því að ég er ekki búin að fá nóg af Edward. Og ég er ekki búin að fá nóg af Alice og öllum hinum karakterunum í bókinni.

Oft þegar ég les bækur þá langar mig rosa oft til að taka upp penna og skrifa athugasemdir, hvað mætti fara betur, hvað þarf að útskýra betur, hverju má sleppa. Mig langar pínu að læra ensku (bókmenntir og creative writing) og fara út í bóka editing. Ég pældi líka í þessu fyrir ári síðan (ég þoli ekki hvernig pælingarnar fara í hringi!) En ég vil samt bara enskar bækur. Ég fíla íslenskar bókmenntir ekkert rosalega, veit ekki hvað það er en mér finnst þær oft vera eitthvað svo try hard. Ég byrjaði á einhverri bók um daginn og uppskriftin fyrir Da Vinci Code skein svo berlega í gegn að ég lagði hana frá mér eftir aðeins fjóra kafla. Ég hef byrjað á nokkrum bókum Arnalds Indriðasonar og ég var ekkert rosa hrifin. Síðasta íslenska bókin sem ég man eftir að hafa lesið og líkað vel við var Saga af stúlku eftir… Mikael Torfason?? Já jú, það er hann.

Ég hata næstu daga út af lífinu. Núna mun það koma algjörlega niðrá mér þetta hugarástand sem ég hef verið í síðustu daga og vikur. Á morgun þarf ég að rumpa af einu EIR verkefni sem hefur eiginlega verið ein stór mistök frá upphafi, það verður kraftaverk ef maður nær að klóra út einhverja sæmandi einkunn. Svo á miðvikudaginn er próf í áfanga sem hefur farið inn um annað og út um hitt (mér finnst þetta oft vera rosa miklar endurtekningar og common knowledge, en maður þarf víst að kunna einhver heiti á hugtökum og drasl) og ég á svo erfitt með að vera bara ekki alveg sama um það. En ég verð að ná 4,8 í þessu prófi til að ná áfanganum. Svo þarf ég helst að vera dugleg að mæta í skólann.

Oh, ég vissi alltaf að það væri ekki rétt að sætta sig við að fara í skóla. Ef ég gæti bara gert ekkert annað en hangið heima, sofið og lesið þá væri ég ánægð.

Published in: on March 2, 2009 at 03:11  Leave a Comment  
Tags: , , , , ,

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.