Take On Me

Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf :P Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.

Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.

Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.

Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day :)

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Jungle Drum

Gleðileg jól öllsömul. Þessi jól voru by far skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Mér finnst samt eins og maður hugsi á hverju ári ,,þessi jól verða nú skrítin…” út af því að einhver var að bætast við í fjölskylduna eða einhver systirin ætlaði að vera annarstaðar um jólin, en nú vorum við bara þrjú. Það var samt alls ekki of mikið af mat (er einhvern tímann hægt að elda of mikið af hamborgarhrygg??). Og eftir kvöldmat fékk ég rétt að aðstoða við að ganga frá matnum, eins og venjulega (í staðin fyrir Elvu planteraða fyrir framan uppþvottavélina var mamma komin í staðin, ég gat ekki farið ein í að ganga frá!). Svo hrúguðum við pökkunum á stofuborðið og hentum pökkum í hvort annað. Það var síðan mjög erfitt að fá mömmu til að opna restina af pökkunum eftir að hún tók upp fartölvuna sem hún fékk frá pabba.

Ég var mjög sátt við jólapakkana þetta árið, ég fékk þrjár bækur (er búin að lesa tvær (önnur var samt svo pínu lítil, maður var ekki lengi með hana)), konfekt og bolla og sturtu dæmi. Svo fékk ég ilmvatn í ,,möndlugjöf” sem ég er enn að venjast, en það er voða bleikt og lyktar alls ekki illa. Ég er samt orðin svo háð bókum þessa dagana, enda líka ágætt að drífa sig í gegnum bækurnar sem mig langar til að lesa áður en ég festist við skólabækurnar aftur. Það er bara svo ótalmargt sem mig langar til að lesa núna en ég gleymi því jafnóðum ef ég skrifa það ekki niður.

Ég fór í bíó með Ingu og Kolfinnu um daginn, við fórum á Yes Man. Hún var bara mjög góð, ótrúlega fyndin og létt. Það er alveg óneitanlega þægilegra að horfa á myndir í bíói en heima í tölvunni, eða í sjónvarpinu. Þegar ég er inni í bíósalnum þá hugsa ég um eiginlega ekki neitt annað en myndina á tjaldinu. Ég gleymi alveg stað og stund. Þegar ég er heima og horfi á bíómynd eða þætti þá verð ég helst að hafa eitthvað annað að gera. Ég er mjög oft að skoða eitthvað annað á netinu (get samt ekki lesið neitt því þá missi ég þráðinn), fer í tetris eða bubbles. Mig langar rosalega til að taka aftur upp á því að prjóna, en ég veit ekki hvað það ætti að vera. En þessi athyglisbrestur veldur því oft að ég naga neglurnar (þær eru reyndar ótrúlega fínar núna, alveg eins og þær voru þegar við vorum í London).

Eftir áramót byrjar svo skólinn, 7. janúar… Verð svo fjóra daga vikunnar í skólanum, verð væntanlega í fríi á föstudögum. Ég er svona aðeins farin að leita að húsnæði á Akureyri, er samt ekkert að flýta mér, en það er ekkert æðislega spennandi að hugsa til þess að fara með rútunni, fyrir utan að það er alls ekki víst að rútan fari í skólann eftir áramót. Og það kostar líka jafnvel meira en almenn mánaðarleiga á herbergi. Ég er búin að fá eitt spennandi svar við auglýsingu sem ég henti inn á dagskrain.is. Svo hef ég líka heyrt um herbergi hjá kennara úr MA sem er alveg spurning um að skoða. En ég er ekkert að hafa áhyggjur, þetta reddast.

Það koma vonandi jól

Svo lengi sem ég man eftir mér hef ég verið b-týpa: vakna úldin og er úldin langt fram eftir degi. Hef svo mesta orkuna eftir kvöldmat og langt fram á nótt. Síðustu tvo-þrjá daga hef ég verið að berjast við a-týpuna í mér. Ég fór að sofa um 9 leitið þegar ég kom heim á sunnudaginn og endaði með því að vakna klukkan 6 daginn eftir. Ég var orðin uppgefin um kvöldmatarleitið og ég sofnaði einhverntíman á milli 9 og 10 í gærkvöldi. Aftur vaknaði ég klukkan 6 í morgun og ég er alveg að líða út af núna, klukkan 10. Ég ætla samt að vaka aðeins lengur svo að ég geti sofið til amk 9 á morgun. Ég er líka búin að vera furðulega hress á morgnana. Mér finnst þetta bara furðulegt ástand og alls ekki líkt mér.

Ég komst að því í dag að ég gleymdi að senda jólakortin. Ég er búin að dreifa einstaka kortum hingað og þangað en alla síðustu viku frestaði ég að fara með bréfin í pósthús og ég hreinlega gleymdi þeim í gær og í dag. Ég hugsa að maður sendi bara jólakveðjur á facebook fyrir restina.

Það koma vonandi jól heitir færslan mín og ég svo sannarlega meina það. Ég er búin að vera geðveikt lengi í “alveg að koma jól”-askapi, alveg síðan kveikt var á jólaljósunum í Manchester. Jólaskapið fór dvínandi eftir að ég kom heim, en einstaka jólalag og það að pakka inn örfáum gjöfum hefur aðeins lífgað upp á skapið. Ég er samt ekki alveg viss um að ég komist úr þessu “alveg að koma jól”-askapi þar sem mér finnst enn vera helgin áður en allir fara í frí. Ég er enn að bíða eftir systrum mínum og frændum (og viðhengjum :P ). Mamma meira að segja tók sig til og skreytti jólatréð, sem hefur verið mitt verk síðan ég man eftir mér, annað hvort hef ég hjálpað systrum mínum eða fengið hjálp frá frændum mínum.

Jólatími er líka tími þegar pabbi tekur sem mest af myndum, kannski ekki jafn mikið og hann hefur tekið síðustu árin en hann mun örugglega taka alveg slatta af myndum. Í tilefni þess hef ég ákveðið að rækta bólur. Ég er oftast frekar heppin með bólur og fæ þær afskaplega sjaldan. Núna hinsvegar er ég með tvær bólur í framan, eina á hálsinum og eina á bakinu þar sem hún mun koma til með að sjást. Ég er alls ekki góð í að láta bólur í friði þannig að þær eru allar einstaklega ljótar. Til að byrja með hélt ég samt að ein bólan væri frunsa en mér til mikillar gleði komst ég að því að þetta var bara bóla, en núna gæti ég alveg eins verið með frunsu, þetta er alveg jafn ljótt.

Já, þetta verða alveg einstök jól…

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.