Mean – Median – Mode

Ég sit hér í stofu 14 í húsi HA á Þórunnarstræti og er að jafna mig eftir fyrsta tímann í EIR (eigindlegar rannsóknaraðferðir) og það eru góðar 20 mínútur í næsta tíma. Ég verð að segja að ég er farin að hallast að því að þetta nám sé ekki alveg sniðið fyrir mig. Ég er svo ofsa ofsa feimin að það er ekki eðlilegt. Eða amk held ég að það sé óeðlilegt. Það er ekkert mál fyrir mig að skrifa um allt og ekkert á bloggið og á facebook en það að þurfa að tala við aðrar manneskjur sem ég þekki ekki neitt er alveg terrifying! Mér finnst alveg nógu slæmt að ég þarf að kynnast fólki innan bekkjarins (sem btw virðist sem allir þekki alla nú þegar (líka þeir sem voru að byrja núna)) og gera eitthvað hópaverkefni í aðferðafræði, en svo þarf ég að gera verkefni alveg ein þar sem ég þarf að tala við Jón og Guggu út í bæ. Ef ég gæti bara lesið heima og hlustað á fyrirlestrana og skrifað einhverjar skýrslur þá væri þetta eitthvað fyrir mig. Mig langar svo til að naga fínu löngu neglurnar mínar af spenningi núna. Meira að segja bækurnar eru búnar að segja að fólk verði að komast yfir feimnina til að geta gert eitthvað af viti (það var nefnilega það sem kennarinn sagði í morgunn. Og hann vill ekki að fólk sé að senda honum e-mail, fólk á frekar að hringja og ef fólk sendir e-mail þá mun hann hringja til baka. Fokk, ég hata að tala í síma!).

En það eru góðir hlutir líka. Bækurnar sem ég er byrjuð á hljóma mjög vel (jú vissulega, pínu þurrar, en þær fjalla um hluti sem ég hef áhuga á). Aðferðafræðin er ekki scary og þó svo að ALM bókin sé þykk og ógnvekjandi þá býður hún upp á spennandi hluti. Líka eina hópaverkefnið í AÐF er að byrja og það var innifalið að hver hópur yrði að hafa einn eða tvo nýnema, þannig að maður er ekki alveg screwed. Og vissulega hljóma verkefnin í EIR alveg þokkalega spennandi, svona ef maður horfir vísindalega á þetta. Og við eigum að horfa á Silence of the Lambs fyrir EIR. Og kennarinn í AÐF hljómar eins og einhver sem talar inn á barnaefni (eða amk barnaefnið fyrir svona 5-10 árum).

Jájá, þetta verður spennandi…

Hmmm…

Mamma kom í bæinn í dag og ég fór með henni í gegnum password og username flóðið sem fylgir því að vera í Háskólanum á Akureyri. Við fórum svo í bæinn og ég græddi nýja skó (ég var eiginlega komin í gegnum hina skónna) og eitthvað af vistum. En þegar ég sat með mömmu í skólanum þá allt í einu sá ég ákveðið munstur… here goes:

Grunnskóli – mamma er kennari, kenndi mér m.a. heimakrókartíma, heimilisfræði og handavinnu.

Menntaskóli – Valdís er kennari, kenndi mér samt bara einn áfanga, en samt…

Háskóli – alveg ákveðin framför en samt, mamma er núna orðin samnemandi minn (við erum samt ekki nálægt því í eins námi eða neitt)!

Ég bara fæ ekki að vera alveg ein í skóla… Það er spurning hvað gerist næsta haust þegar ég fer suður (ég ætti kannski að íhuga nám í Manchester, eða elta Eddu hvert sem hún mun fara…) Kannski er það bara ég sem elti mitt fólk? Ég var samt búin að ákveða að fara í MA áður en Valdís sótti um starfið og ég vissi ekki af því að mamma ætlaði í nám í HA fyrr en eftir að ég sótti um!

Published in: on January 9, 2009 at 18:38  Comments (1)  
Tags: , , , , , , , , , , , , , ,

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Jungle Drum

Gleðileg jól öllsömul. Þessi jól voru by far skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Mér finnst samt eins og maður hugsi á hverju ári ,,þessi jól verða nú skrítin…” út af því að einhver var að bætast við í fjölskylduna eða einhver systirin ætlaði að vera annarstaðar um jólin, en nú vorum við bara þrjú. Það var samt alls ekki of mikið af mat (er einhvern tímann hægt að elda of mikið af hamborgarhrygg??). Og eftir kvöldmat fékk ég rétt að aðstoða við að ganga frá matnum, eins og venjulega (í staðin fyrir Elvu planteraða fyrir framan uppþvottavélina var mamma komin í staðin, ég gat ekki farið ein í að ganga frá!). Svo hrúguðum við pökkunum á stofuborðið og hentum pökkum í hvort annað. Það var síðan mjög erfitt að fá mömmu til að opna restina af pökkunum eftir að hún tók upp fartölvuna sem hún fékk frá pabba.

Ég var mjög sátt við jólapakkana þetta árið, ég fékk þrjár bækur (er búin að lesa tvær (önnur var samt svo pínu lítil, maður var ekki lengi með hana)), konfekt og bolla og sturtu dæmi. Svo fékk ég ilmvatn í ,,möndlugjöf” sem ég er enn að venjast, en það er voða bleikt og lyktar alls ekki illa. Ég er samt orðin svo háð bókum þessa dagana, enda líka ágætt að drífa sig í gegnum bækurnar sem mig langar til að lesa áður en ég festist við skólabækurnar aftur. Það er bara svo ótalmargt sem mig langar til að lesa núna en ég gleymi því jafnóðum ef ég skrifa það ekki niður.

Ég fór í bíó með Ingu og Kolfinnu um daginn, við fórum á Yes Man. Hún var bara mjög góð, ótrúlega fyndin og létt. Það er alveg óneitanlega þægilegra að horfa á myndir í bíói en heima í tölvunni, eða í sjónvarpinu. Þegar ég er inni í bíósalnum þá hugsa ég um eiginlega ekki neitt annað en myndina á tjaldinu. Ég gleymi alveg stað og stund. Þegar ég er heima og horfi á bíómynd eða þætti þá verð ég helst að hafa eitthvað annað að gera. Ég er mjög oft að skoða eitthvað annað á netinu (get samt ekki lesið neitt því þá missi ég þráðinn), fer í tetris eða bubbles. Mig langar rosalega til að taka aftur upp á því að prjóna, en ég veit ekki hvað það ætti að vera. En þessi athyglisbrestur veldur því oft að ég naga neglurnar (þær eru reyndar ótrúlega fínar núna, alveg eins og þær voru þegar við vorum í London).

Eftir áramót byrjar svo skólinn, 7. janúar… Verð svo fjóra daga vikunnar í skólanum, verð væntanlega í fríi á föstudögum. Ég er svona aðeins farin að leita að húsnæði á Akureyri, er samt ekkert að flýta mér, en það er ekkert æðislega spennandi að hugsa til þess að fara með rútunni, fyrir utan að það er alls ekki víst að rútan fari í skólann eftir áramót. Og það kostar líka jafnvel meira en almenn mánaðarleiga á herbergi. Ég er búin að fá eitt spennandi svar við auglýsingu sem ég henti inn á dagskrain.is. Svo hef ég líka heyrt um herbergi hjá kennara úr MA sem er alveg spurning um að skoða. En ég er ekkert að hafa áhyggjur, þetta reddast.

I’m Only Sleeping

Jæja, nokkur komment fékk ég á seinustu færslu, but then again þá voru þetta sömu manneskjurnar sem voru nú þegar búnar að kommenta á síðunni. Takk fyrir það Edda og Inga :) Þið hin megið bara skammast ykkar, ég veit að þið kíkið hingað inn (veit kannski ekki nákvæmlega hver ,,þið” eruð, en það eru komin 39 innlit í dag, meira en það sem við Inga fengum saman á weltreise… Declare yourselves!).

Nú man ég ekki hvað ég sagði í síðustu færslu… Jújú, Ragna hélt áfram að baka í morgun. En samt fyrst, ég fékk ógeðslegan hausverk í gærkvöldi (var samt með hann í allan gærdag en ég var bara of upptekin til að vera ekki sama) og ég gat ekki annað en velt fyrir mér hvort að ég væri með mígreni þegar ég barðist við ógleðina og sársaukann með köldum rökum þvottapoka, því ekki voru til verkjatöflur á heimilinu. Svo vaknaði ég í morgun/nótt klukkan 4 og gat ómögulega sofnað aftur. Ég bara dundaði mér eitthvað í tölvunni þangað til að mamma og pabbi fóru í vinnuna, þá fór ég fram og kveikti á ofninum. Þar skellti ég sörudeiginu í form og henti inn í ofn á meðan ég gerði mér einhverskonar omilettu. Eftir langan tíma fannst mér svo að sörukakan hlyti nú að vera tilbúin og tók hana út. Ég held samt að hún hafi verið pínu of lítið bökuð í miðjuna. Svo tók ég mig til og gerði piparkökurnar, en þar sem ég fann ekki formin þá fengu kökurnar að vera allar hringlaga. Þar náði ég að brenna fyrstu plötuna í kolamola, en það sem kom á eftir er held ég alveg ætt. Ég samt var of löt til að fara í kókoskransana. Ég líka dundaði mér heillengi í að gera söruköku og vonandi verður hún góð… Ég samt eiginlega þoli ekki að gera sörur núna og þegar ég var að gera piparkökurnar óskaði ég þess heitt að hafa Elvu og Magna með mér (eða Elvu til að gera kökurnar og Magna til að hjálpa mér að fylgjast með og smakka). En þetta hafðist og ég er eiginlega bara fegin að vera bara með fjórar sortir, þetta er farið að síga á þriðja dag í bakstri, úff…

Ég fór líka og kíkti á póstinn í hádeginu, það var bara skemmtilegur póstur til mín :) Þarna fékk ég stórann pakka frá Snæfríði, sem var ekki alveg jafn stór þegar ég tók hann úr kassanum og hinum kassanum og tók blöðin frá. Svo fékk ég líka bréf frá Háskólanum á Akureyri, úff hvað þeir voru ekki lengi að fara yfir umsóknina mína. Ég má semsagt mæta 7. janúar, get haft Ingu mér til halds og trausts fyrsta daginn þar sem við erum innan sömu deildar (eða ekki í raunvísindum eða eitthvað) og á að mæta með fartölvu. Gaman það. Nú þarf ég bara að fara í að athuga með rútuferðir í bæinn, ég held að Rúnar frændi sjái um þetta. Úff það gæti samt orðið frekar dýrt…

Já, ég ætlaði nú ekki að segja meira, ekki sem ég man eftir og það er ekki svo mikið búið að gerast hjá mér síðasta sólahringinn. Nú ætla ég bara að horfa pínu á QI og fara að sofa…

Live Your Life

Já, Ragna er að baka. Hún er búin að setja í öll deigin (Sörurnar eru samt pínu vafasamar, bíð eftir því að mamma kemur heim) og búin að baka tvær plötur af Amerískum smákökum, og ég verð að segja að þær hafa aldrei verið jafn perfect og jafn góðar! Ég byrjaði náttúrulega á þeim út af því að þær eru mínar uppáhalds og ég held að ég hafi smakkað deigið of mikið í morgun, þess vegna þegar ég sá að klukkan var orðin þrjú hugsaði ég ,,shit, ég á eftir að borða” :P Ég verð líka að passa mig að borða ekki of mikið af smákökunum núna svo að mamma og pabbi fái einhverjar kökur líka…

Ég er farin að sætta mig ansi mikið við að vera heima í vetur. Ég er búin að fara tvisvar til Akureyrar í hálkunni og það reddaðist allt saman. Ég líka tók kuldann og snjóinn í sátt um daginn (eða nóttina) þegar ég leit út um gluggann og himininn var svo fallega blár og stjörnubjartur og tunglið nánast fullt. Snjórinn glitraði og það bærðist ekki hár á höfði (ég reyndar sá engin höfuð úti, en amk ekkert hreyfðist). Það er fátt jafn fallegt og sveitin kæra á rólegu vetrarkvöldi. Svo líka um daginn þegar ég var að fara til Akureyrar var svo frábær birta og himininn milli fjallanna var fjólublár í rótina og varð svo bleikar og bleikari og á bak við mig var fallegur baby blár. Ég samt sakna þess að vera ekki að upplifa eitthvað nýtt, sjá fallegu jólaljósin í Manchester og svona.

Það kannski sýnir hvað ég hef ógurlega mikinn tíma á mínum höndum, en ég hef aldrei verið jafn mikið á facebook og þessa dagana. Vanalega rétt kíki ég inn til að athuga statusinn á öðrum og svoleiðis, en núna er ég á fullu í að leika mér og leita af fólki og stofna hópa og svoleiðis. Ég er eitthvað farin að sýslast í að safna hafró fólki saman á reunion næsta sumar, sem ég var búin að lofa mér að gera ekki, eða amk taka það ekki að mér nema ef einhver bæði mig sérstaklega um það…

Ég fór í gær inneftir til að skila inn stúdentsprófsskírteini og mynd til HA, ég er s.s. búin að sækja um í sálfræði. Svo fæ ég væntanlega að vita í lok vikunnar hvort að þeir samþykki þetta. Svo fékk ég líka e-mail frá ítalskri fjölskyldu sem vill fá mig sem au pair. Ég samt er alveg til í að fara í háskóla núna, mér finnst ég vera orðin nógu gömul og þetta yrði auðveldara (í skipulagningu) heldur en svo margt annað. Ég er pottþétt manneskjan sem fer auðveldu leiðina. Svo get ég líka ferðast þegar ég verð stór. Hrafnhildur var 29 ára og eflaust langt frá því að hætta að ferðast, ég hef enn 9 (eiginlega rúmlega 8) ár í það.

Ég sá að það voru 32 innlit hérna í gær, en samt er ég bara búin að fá tvö komment… ég stórlega efast að þær hafi kíkt 16 sinnum hvor, bara í gær… hverjir eru að kíkja hingað inn?

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.