Jæja, nokkur komment fékk ég á seinustu færslu, but then again þá voru þetta sömu manneskjurnar sem voru nú þegar búnar að kommenta á síðunni. Takk fyrir það Edda og Inga
Þið hin megið bara skammast ykkar, ég veit að þið kíkið hingað inn (veit kannski ekki nákvæmlega hver ,,þið” eruð, en það eru komin 39 innlit í dag, meira en það sem við Inga fengum saman á weltreise… Declare yourselves!).
Nú man ég ekki hvað ég sagði í síðustu færslu… Jújú, Ragna hélt áfram að baka í morgun. En samt fyrst, ég fékk ógeðslegan hausverk í gærkvöldi (var samt með hann í allan gærdag en ég var bara of upptekin til að vera ekki sama) og ég gat ekki annað en velt fyrir mér hvort að ég væri með mígreni þegar ég barðist við ógleðina og sársaukann með köldum rökum þvottapoka, því ekki voru til verkjatöflur á heimilinu. Svo vaknaði ég í morgun/nótt klukkan 4 og gat ómögulega sofnað aftur. Ég bara dundaði mér eitthvað í tölvunni þangað til að mamma og pabbi fóru í vinnuna, þá fór ég fram og kveikti á ofninum. Þar skellti ég sörudeiginu í form og henti inn í ofn á meðan ég gerði mér einhverskonar omilettu. Eftir langan tíma fannst mér svo að sörukakan hlyti nú að vera tilbúin og tók hana út. Ég held samt að hún hafi verið pínu of lítið bökuð í miðjuna. Svo tók ég mig til og gerði piparkökurnar, en þar sem ég fann ekki formin þá fengu kökurnar að vera allar hringlaga. Þar náði ég að brenna fyrstu plötuna í kolamola, en það sem kom á eftir er held ég alveg ætt. Ég samt var of löt til að fara í kókoskransana. Ég líka dundaði mér heillengi í að gera söruköku og vonandi verður hún góð… Ég samt eiginlega þoli ekki að gera sörur núna og þegar ég var að gera piparkökurnar óskaði ég þess heitt að hafa Elvu og Magna með mér (eða Elvu til að gera kökurnar og Magna til að hjálpa mér að fylgjast með og smakka). En þetta hafðist og ég er eiginlega bara fegin að vera bara með fjórar sortir, þetta er farið að síga á þriðja dag í bakstri, úff…
Ég fór líka og kíkti á póstinn í hádeginu, það var bara skemmtilegur póstur til mín
Þarna fékk ég stórann pakka frá Snæfríði, sem var ekki alveg jafn stór þegar ég tók hann úr kassanum og hinum kassanum og tók blöðin frá. Svo fékk ég líka bréf frá Háskólanum á Akureyri, úff hvað þeir voru ekki lengi að fara yfir umsóknina mína. Ég má semsagt mæta 7. janúar, get haft Ingu mér til halds og trausts fyrsta daginn þar sem við erum innan sömu deildar (eða ekki í raunvísindum eða eitthvað) og á að mæta með fartölvu. Gaman það. Nú þarf ég bara að fara í að athuga með rútuferðir í bæinn, ég held að Rúnar frændi sjái um þetta. Úff það gæti samt orðið frekar dýrt…
Já, ég ætlaði nú ekki að segja meira, ekki sem ég man eftir og það er ekki svo mikið búið að gerast hjá mér síðasta sólahringinn. Nú ætla ég bara að horfa pínu á QI og fara að sofa…