Take On Me

Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf :P Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.

Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.

Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.

Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day :)

LoveGame

Já, það bara gengur ekkert að blogga þessa dagana. Ég er rosa lengi búin að vera alveg að fara að blogga, en svo gerist ekki neitt. Ekki það að það er fullt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Ég er ljóshærð. Alveg rosa ljóshærð (finnst mér) og hárið er eitthvað svo stutt. En ég er mjög ánægð. Ég líka er byrjuð að nota linsur annað slagið, er að venja mig við það. Ég er samt sannfærð um það að linsurnar séu aðeins of stórar, amk er það tilfinningin sem ég fæ.

Júbileringin var frábær! Það var svo gaman og svo furðulegt eitthvað að hitta alla aftur, mér fannst stundum eins og það væri ekki heill vetur síðan ég hitti þau öll, pínu eins og að stökkva eitt ár aftur í tímann. Ég er líka enn hissa á því hversu mikið ég drakk þessa daga, það var alveg ótrúlegt magn sem fór ofan í mig. Það var samt ekkert sem var eitthvað über merkilegt sem gerðist svona eftir á að hyggja, en þetta var klikkað skemmtilegt. Og pínu sorglegt þegar við tókum hvíta kollinn af.

Ég er loksins búin að sætta mig við misheppnuðu ferðina síðasta haust. Ég nefnilega áttaði mig á því um daginn að ef að ferðin hefði farið eins og áætlað var, þá hefðum við Inga ekki komið heim fyrr en rétt fyrir 16. júní, ég hefði örugglega ekki fengið vinnu á hvalasafninu og þá hefði ég ekki kynnst öllu þessu frábæra fólki sem vinnur hérna. Mér hefur fundist fólkið síðustu ár alveg verið skemmtileg, en þau sem eru núna, þau eru bara æði. Vissulega er erfitt að tala við ítölsku stelpuna þar sem hún talar ekkert voða góða ensku, og svo er svissneska stelpan sem endurtekur allt sem maður segir á meðan maður er að tala (það er virkilega pirrandi til lengdar, en hún er mjög fín). Bandarísku stelpurnar eru að keppast um það hvor getur talað meira (þær eru svo mikið æði!). Þær líka halda að hin íslenska stelpan sé ekki alveg að fatta húmorinn þeirra, þ.a.l. líkar þeim betur við mig (hah! :P ). Þær líka rífast um það hvorum hópnum ég tilheyri (team awesome eða team richous (held ég), þær eru sko í sitthvorum hópnum og við Guðrún tilheyrum hvorugum) og eru líka að reyna að sannfæra mig um að mig langi frekar að fara til Bandaríkjana að læra heldur en Bretlands. Æji þau öll sömul gera lífið aðeins skemmtilegra, tala nú ekki um vinnuna :)

Ég veit eiginlega ekki hvað meira ég hef að segja… Magni er kominn til landsins, en kemur ekki norður fyrr en í byrjun júlí. Hrafnkell og Edda koma… fljótlega :P Ég man ekki dagsetninguna, en það verður ágætt að fá þau.

Já, þetta er allt voða voða gaman. Fljótlega (vonandi) fæ ég að vita meira um háskólann, ég er ennþá númer 31 á biðlista hjá stúdentagörðunum. Við Inga ætlum s.s. þangað (nema einhver geti bent okkur á ódýrt húsnæði fyrir okkur báðar…)

Nóg í bili held ég, bis Später :)

Supermassive Black Hole

Ég held að ég sé að drepa bloggið mitt hægt og rólega. Það er endalaust langt síðan ég bloggaði síðast og ég er heppin ef að 20 manns heimsækja bloggið yfir daginn.

Ég endur-uppgötvaði Muse um daginn og ég hef ekki getað hætt að hlusta á strákana síðan. Allan daginn út og inn. Já ókei, nema þegar ég er í vinnunni, svona helst.

Það stefnir allt í frábært sumar. Nánast allir sjálfboðaliðarnir eru komnir (bara ein stelpa sem á eftir að koma) og þetta er bara alveg fínasta fólk. Eiginlega bara frábært fólk. Bandaríkjamennirnir eru svo skemmtilega kaldhæðnir og Þjóðverjarnir gera sitt besta til að halda í við þá, það er stundum alveg hreinasta snilld að hlusta á samtölin sem eiga sér stað! Ein stelpan er alveg æði, hún bara stoppar ekki! Alltaf af og til segir hún eitthvað svo random að maður situr bara þarna og hugsar WTF! Haha já, þetta verður held ég alveg ágætt sumar vinnulega séð :)

Svo er ég svo heppin að ég fæ að hafa alla litlu frændur mína á klakanum í sumar, Magni kemur til Íslands 21. júní (??) og kemur vonandi í Teginn fljótlega eftir það, og svo er Edda að koma með Hrafnkel einhvern tímann eftir það (man engar dagsetningar núna…) sem er náttúrulega bara frábært. Svo er Hartmann litli alltaf að stækka og stækka (og btw þá kom einn Hartmann inn á safnið um daginn, örugglega 6-7 ára gamall… mér fannst það merkilegt :P ) og við erum búin að ná vel saman á skiptiborðinu ;)

Eftir viku er svo júbilering! Shit fokk hvað ég hlakka til! Bekkjapartý á laugardaginn, árgangs-útilega á sunnudeginum, annað bekkjarpartý/gathering á mánudeginum og svo aðal veislan á þriðjudeginum! Ég er svo í fríi 17. og 18. júní þannig að ég hef nægan tíma til að vera þunn :D Gosh og svo fær maður að hitta fleira fólk heldur en bara Inguna (ekki það að það sé slæmt að hitta Inguna, við bara höfum sagt allt sem við höfum að segja við hvor aðra þessa dagana :P ).

Ég bókaði tíma í litun og klippingu á þriðjudaginn. Þetta er heljarinnar afrek þar sem ég skipti um skoðun minnst þrisvar á dag hvort ég vilji klippa hárið eða ekki. Mér finnst gaman að vera með sítt hár (mér hefur aldrei tekist að vera með það lengra en það er núna) en svo fer það svo í taugarnar á mér en ég vil helst ekki hafa hárið í teygju á almanna færi (mér líkar ekki við profilinn minn) og það er bara vesen. En núna ætla ég að klippa það aðeins (alls alls ekki stutt stutt, en styttra) og ég ætla að setja strípur. Nú er samt aðal vandamálið. Ég get ekki ákveðið mig hvort ég vilji lýsa á mér hárið eða dekkja það. I’ve done the darker thing en ég man ekki eftir því að hafa viljandi lýst á mér hárið.

Hvað segið þið? Á ég að lýsa á mér hárið eða dekkja það???

For You

Það virðist sem að dugnaðurinn við að læra fyrir sálfræðipróf hafi ákveðið að halda áfram. Ég kláraði EIR heimaverkefnið mitt í gær og er búin að lesa hellings í stærðfræðibókinni minni (en ég gafst upp því hún er eiginlega frekar heimskuleg og þetta er ekkert nýtt). Á morgun ætla ég svo að lesa aðeins fyrir EIR og byrja á næsta kafla í sálfræðibókinni. Ég verð samt að segja að mér finnst sálfræðibókin áhugaverðasta bókin af öllu bókaflóðinu í skólanum. Eða mér finnst ég hafa lært lang mest í því fagi. Ég verð samt rosa oft ósátt við kennarann þar sem hún er stundum rosalega þröngsýn. Það er samt eiginlega frekar erfitt að útskýra hvernig, en stundum er eins og hún neiti að viðurkenna að hún heyrði spurninguna vitlaust, eða að hún neiti að leiðrétta sig. Um daginn þá var ein stelpan sem spurði spurningu en orðaði hana ekki alveg nógu vel (hún er frá Færeyjum) og hún þurfti nánast að rífast við kennarann til að fá hana til að skilja spurninguna rétt. Æji, ég get ekki útskýrt þetta alveg nógu vel, en hún (kennarinn) fer amk rosa oft í taugarnar á mér. Sérstaklega þegar hún segir vövðar (í staðin fyrir vöðvar).

Ég er farin að verða virkilega pirruð út í bankann, eða konuna í bankanum, þessa dagana. Ég hefði bara átt að bíða með að sækja um þetta helvítis námslán, þá hefði ég ekki þurft að láta breyta því og ekki þurft að fara svona oft niðureftir til að láta laga peninginn minn. Ég fór niðureftir fyrir tveim vikum síðan, lét breyta þessu drasli (sem, btw, var miklu flóknara en hún sagði að það væri) og hún sagði að það mundi koma inn eftir viku. Ég hringdi loks á fimmtudaginn, þar sem þetta var ekki enn komið, og spurði hvað væri málið, þá náttúrulega þurfti hún að fiffa eitthvað í tölvunni til að þetta kæmi inn á minn reikning. En svo sagði hún mér að ég fengi febrúar skammtinn í gær þar sem 1. feb er á sunnudaginn þannig að ég sagði að ég gæti nú alveg fengið restina af janúar skammtinum bara þá. Ég er enn bara með 56 krónur inni á reikningnum mínum! Ég verð svo pirruð við að hugsa um allt þetta vesen!

Annars er lífið bara gott. Við Inga erum búnar að vera duglegar í ræktinni, ég er búin að vera duglegri í að borða ekki rusl mat, ég er í lúxúsnum heima hjá m&p og mamma fyllti á bensínið mitt í gær. Og pabbi kíkti á bílinn og sagði að það væri ekkert að. Mamma líka keypti sér nýjan tölvustól þar sem mig vantar tölvustól heima (mamma er með minn) og hún sendi mig bara með þennan nýja heim og við skiptum svo í sumar. 

Ég var að skoða myndir af Hrafnkeli og Magna á barnalandinu hans Hrafnkels um daginn, myndir frá því að Keli var lítill, og ég sakna þeirra ekkert smá þessa dagana! Það eru komnir tveir mánuðir síðan ég hitti Hrafnkel síðast og sjö síðan ég hitti Magna. Mér finnst þetta alveg hræðilegt ástand. Mér finnst eiginlega verst að það er svo flókið og svo dýrt að fara til Bandaríkjana að það er tæplega í boði að heimsækja Magna og co., þó svo að manni langi rosalega til þess. En svona er þetta…

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.