Take On Me

Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf :P Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.

Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.

Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.

Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day :)

LoveGame

Já, það bara gengur ekkert að blogga þessa dagana. Ég er rosa lengi búin að vera alveg að fara að blogga, en svo gerist ekki neitt. Ekki það að það er fullt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Ég er ljóshærð. Alveg rosa ljóshærð (finnst mér) og hárið er eitthvað svo stutt. En ég er mjög ánægð. Ég líka er byrjuð að nota linsur annað slagið, er að venja mig við það. Ég er samt sannfærð um það að linsurnar séu aðeins of stórar, amk er það tilfinningin sem ég fæ.

Júbileringin var frábær! Það var svo gaman og svo furðulegt eitthvað að hitta alla aftur, mér fannst stundum eins og það væri ekki heill vetur síðan ég hitti þau öll, pínu eins og að stökkva eitt ár aftur í tímann. Ég er líka enn hissa á því hversu mikið ég drakk þessa daga, það var alveg ótrúlegt magn sem fór ofan í mig. Það var samt ekkert sem var eitthvað über merkilegt sem gerðist svona eftir á að hyggja, en þetta var klikkað skemmtilegt. Og pínu sorglegt þegar við tókum hvíta kollinn af.

Ég er loksins búin að sætta mig við misheppnuðu ferðina síðasta haust. Ég nefnilega áttaði mig á því um daginn að ef að ferðin hefði farið eins og áætlað var, þá hefðum við Inga ekki komið heim fyrr en rétt fyrir 16. júní, ég hefði örugglega ekki fengið vinnu á hvalasafninu og þá hefði ég ekki kynnst öllu þessu frábæra fólki sem vinnur hérna. Mér hefur fundist fólkið síðustu ár alveg verið skemmtileg, en þau sem eru núna, þau eru bara æði. Vissulega er erfitt að tala við ítölsku stelpuna þar sem hún talar ekkert voða góða ensku, og svo er svissneska stelpan sem endurtekur allt sem maður segir á meðan maður er að tala (það er virkilega pirrandi til lengdar, en hún er mjög fín). Bandarísku stelpurnar eru að keppast um það hvor getur talað meira (þær eru svo mikið æði!). Þær líka halda að hin íslenska stelpan sé ekki alveg að fatta húmorinn þeirra, þ.a.l. líkar þeim betur við mig (hah! :P ). Þær líka rífast um það hvorum hópnum ég tilheyri (team awesome eða team richous (held ég), þær eru sko í sitthvorum hópnum og við Guðrún tilheyrum hvorugum) og eru líka að reyna að sannfæra mig um að mig langi frekar að fara til Bandaríkjana að læra heldur en Bretlands. Æji þau öll sömul gera lífið aðeins skemmtilegra, tala nú ekki um vinnuna :)

Ég veit eiginlega ekki hvað meira ég hef að segja… Magni er kominn til landsins, en kemur ekki norður fyrr en í byrjun júlí. Hrafnkell og Edda koma… fljótlega :P Ég man ekki dagsetninguna, en það verður ágætt að fá þau.

Já, þetta er allt voða voða gaman. Fljótlega (vonandi) fæ ég að vita meira um háskólann, ég er ennþá númer 31 á biðlista hjá stúdentagörðunum. Við Inga ætlum s.s. þangað (nema einhver geti bent okkur á ódýrt húsnæði fyrir okkur báðar…)

Nóg í bili held ég, bis Später :)

Supermassive Black Hole

Ég held að ég sé að drepa bloggið mitt hægt og rólega. Það er endalaust langt síðan ég bloggaði síðast og ég er heppin ef að 20 manns heimsækja bloggið yfir daginn.

Ég endur-uppgötvaði Muse um daginn og ég hef ekki getað hætt að hlusta á strákana síðan. Allan daginn út og inn. Já ókei, nema þegar ég er í vinnunni, svona helst.

Það stefnir allt í frábært sumar. Nánast allir sjálfboðaliðarnir eru komnir (bara ein stelpa sem á eftir að koma) og þetta er bara alveg fínasta fólk. Eiginlega bara frábært fólk. Bandaríkjamennirnir eru svo skemmtilega kaldhæðnir og Þjóðverjarnir gera sitt besta til að halda í við þá, það er stundum alveg hreinasta snilld að hlusta á samtölin sem eiga sér stað! Ein stelpan er alveg æði, hún bara stoppar ekki! Alltaf af og til segir hún eitthvað svo random að maður situr bara þarna og hugsar WTF! Haha já, þetta verður held ég alveg ágætt sumar vinnulega séð :)

Svo er ég svo heppin að ég fæ að hafa alla litlu frændur mína á klakanum í sumar, Magni kemur til Íslands 21. júní (??) og kemur vonandi í Teginn fljótlega eftir það, og svo er Edda að koma með Hrafnkel einhvern tímann eftir það (man engar dagsetningar núna…) sem er náttúrulega bara frábært. Svo er Hartmann litli alltaf að stækka og stækka (og btw þá kom einn Hartmann inn á safnið um daginn, örugglega 6-7 ára gamall… mér fannst það merkilegt :P ) og við erum búin að ná vel saman á skiptiborðinu ;)

Eftir viku er svo júbilering! Shit fokk hvað ég hlakka til! Bekkjapartý á laugardaginn, árgangs-útilega á sunnudeginum, annað bekkjarpartý/gathering á mánudeginum og svo aðal veislan á þriðjudeginum! Ég er svo í fríi 17. og 18. júní þannig að ég hef nægan tíma til að vera þunn :D Gosh og svo fær maður að hitta fleira fólk heldur en bara Inguna (ekki það að það sé slæmt að hitta Inguna, við bara höfum sagt allt sem við höfum að segja við hvor aðra þessa dagana :P ).

Ég bókaði tíma í litun og klippingu á þriðjudaginn. Þetta er heljarinnar afrek þar sem ég skipti um skoðun minnst þrisvar á dag hvort ég vilji klippa hárið eða ekki. Mér finnst gaman að vera með sítt hár (mér hefur aldrei tekist að vera með það lengra en það er núna) en svo fer það svo í taugarnar á mér en ég vil helst ekki hafa hárið í teygju á almanna færi (mér líkar ekki við profilinn minn) og það er bara vesen. En núna ætla ég að klippa það aðeins (alls alls ekki stutt stutt, en styttra) og ég ætla að setja strípur. Nú er samt aðal vandamálið. Ég get ekki ákveðið mig hvort ég vilji lýsa á mér hárið eða dekkja það. I’ve done the darker thing en ég man ekki eftir því að hafa viljandi lýst á mér hárið.

Hvað segið þið? Á ég að lýsa á mér hárið eða dekkja það???

Everlong

Já sko, annað….

Komment:

Inga: furðuleg stuð eru góð… og ekki er ég hissa á að þú ummm… relate to things I write about… :P

Edda: :)

Kå: ég er þokkalega hætt við lýðháskóla, ég væri alveg til í að fara til Dk as always en ég hugsa að það sé ekki raunhæft nema þá bara í smá heimsókn. Ég er svona 99% búin að ákveða að fara í HÍ and I wouldn’t touch psychology with a 10′ pole! Eða námið þ.e.a.s… ég hef enn alveg áhuga á sálfræði sem slíku en það er ekki séns að ég nenni að mennta mig á því sviði, er algjörlega komin með ógeð á félagsvísindum! Nei, mín leið liggur í ensku, for obvious reasons… Og varðandi birtuna, ég þoli hana ekki á morgnana, ég vil sofa og ég sef ekki vel í birtu. Og það er yfirleitt farið að birta þegar ég loksins er að sofna. But each to their own…

Já… eins og ég sagði við Ingu einhvern tíman í dag, vanalega í prófatíð þá verð ég alltaf svo pirruð við sjálfa mig yfir því að vera ekki búin að læra betur yfir önnina og ég hef yfirleitt verið bara svona þokkaleg í að læra fyrir próf og ef ég læri ekki fæ ég oftast sektarkennd (shitfokkshitfokk dæmi… ) en núna? Nei… mér gæti ekki verið meira sama. Einu einstaklings verkefnin yfir önnina (nei ókei, það var eitt þarna alveg í blá byrjun og það gekk viðbjóðslega vel) eru einu verkefnin sem ég get ekki klárað. Og mér er alveg sama. Ég á eftir að frumlesa 150 bls fyrir prófið á morgun og helst rifja upp 500 bls í viðbót… og mér er svo þokkalega sama. Ég veit að ég næ ekki einum áfanganum ef ég skila ekki verkefninu sem átti að skila í gær, og mér er sama (ég er samt að reyna að vinna í því, ég bara kemst ekki lengra en á glæru 2 (er að gera glærusýningu úr einhverri grein, glærurnar eiga að vera 20)). Ég veit ekki hvernig það er með hitt verkefnið sem ég á eftir, en það er að stefna í tvær vikur síðan ég átti að skila því þannig að ég hlýt að vera að nálgast í núllið, en ég hugsanlega næ áfanganum…

Vanalega ef að mér gengur illa í skólanum þá vil ég ekki hafa hátt um það svona opinberlega (as in einhverstaðar þar sem m&p komast að því) en mér er sama. Ég veit að ég mun skulda shit fokk mikinn pening ef ég fell í einhverjum áföngum (tala nú ekki um sál áfangann þar sem hann er 12 ECTS einingar) en mér er svo sama, þetta er peningur sem ég mun hvort eð er þurfa að borga einhvern tíman seinna, afhverju ekki að borga það bara í sumar. My motivation is going further south every day…

Ugh… annars bara nýt ég þess að vera ein í íbúðinni hér á Ak áður en ég pakka saman og segi skilið við stóra rúmið um helgina. Svo er bara viku frí áður en ég byrja á Hvalasafninu og kynnist fleiri útlendingum. Haha, fyrsta daginn er ég að vinna með Christian S og daginn eftir er ég að vinna með Christian F, áhugavert non?

Já og ég er hætt við að skreppa suður, ég nenni ekki að fara ein og nenni ekki að redda mér gistingu og bara vesen…

Jájá, back to life in denial… bara tveir dagar eftir :) (og ég vil engin “you can do it” komment, because I won’t…) (Seriously, ég er hætt að geta tjáð mig á hinu ylhýra (ljóta ljóta orð))

I Hate This Part

Mér er svo illt í upphandleggjunum!! Og í magavöðvunum svona smá, en aðallega upphandleggjunum og öxlunum!! Alveg hrikalegt sko! Maður teygði kannski ekki alveg nógu vel á í gær, enda þegar maður var búin að koma sér vel fyrir í fámennum salnum og byrjaður að gera magaæfingarnar þá kom inn hópur af fólki með leiðbeinanda úr spinning og það truflaði mann ekkert smá! Við Inga vorum geðveikt út úr eitthvað…

Oh hvað ég er orðin þreytt á því að eiga engan pening… Ég samt var mjög ánægð þegar ég fann 2000 kall á mánudaginn sem ég vissi ekki að væri til. Núna á ég 900 kr og tími ekki að kaupa neitt. Ég er líka komin með leið á að borða bara morgunkorn og ristað brauð. Ég tími ekki einu sinni að kaupa ost… Ég líka keypti tvær skyrdollur um daginn og banana til að bæta við útí, fyrri skyrdollan var bara mjög góð, bragðaðist mun betur með banönum en án, en svo fékk ég mér aftur skyr í morgun og ég kúgaðist nánast við að borða þetta. Mér finnst mjög óþægilegt að borða skyr og jógúrt, mér finnst það vera eitthvað svo þurrt og súrt einhvernvegin. Ég er líka orðin þreytt á því að drekka bara vatn. Mér finnst fínt að drekka vatn, þá sérstaklega í kringum þann tíma sem ég fer í ræktina, en alltaf, alla daga, það finnst mér vera hálf leiðinlegt. Mig langar geggjað í t.d. langloku úr bakaríinu við brúnna og kókómjólk (ég fæ mér stundum jarðaberjabúðing/mjólk, en þá er ég fljótari að klára mjólkina og þarf að kaupa nýja…)! Mig langar ekki alveg jafn mikið í hamborgara og í síðustu viku, kjötþörfinni minni var svalað um helgina þegar ég fékk kjúkling og roast beef og svínahnakka, nammi!! Ég elska kjöt!

Æjih… svo þarf maður væntanlega að eiga pening um helgina til að eyða, er að fara að fá mér afmælis-/jólagjöfina mína frá Ingu (ég veit að Inga hefur ekkert verið að leyna þessu, en þetta er leyndó hjá mér sko!) :) Já, það er spurning hvort að maður eigi að hafa samband við bankann, athuga hvort að hann vilji borga mér peninginn sem ég fékk ekki í janúar…

Jájá, svona eru hugrenningar Rögnu þessa stundina :)

Update: Gjafadæmið verður víst ekki fyrr en um næstu helgi (27. feb – 1. mars), þannig að ef bankinn stendur fyrir sínu þá mun ég fá mars peninginn fyrir helgi og þar með eiga efni á gjöfinni, en maður samt á erfitt með að treysta því þar sem að febrúar peningurinn kom ekki fyrr en eftir helgi þegar kellingin lofaði því fyrir helgi…

Published in: on February 18, 2009 at 16:50  Comments (6)  
Tags: ,

Womanizer

Kjáninn ég ákvað að sofa ekkert í nótt. Ég er því búin að vera vakandi frá því ca. eitt (13:00) í gær, sunnudag. Ég var alveg hrikalega fersk í morgun þegar ég var að taka mig til fyrir skólann og ég er að meina það, engin kaldhæðni ;) Svo eftir nokkrar mínútur í tíma fór slenið að leggjast á  mig og það varð æ erfiðara að gera mig skiljanlega. Ég fékk alveg svefngalsakast þegar við Inga vorum að taka okkur til til að fara heim. En já, ég fór svo heim en ég fór ekki að sofa út af því að ég þurfti að mæta aftur í tíma eftir einn og hálfan tíma. Mætti aftur í tíma og átti alveg hrikalega erfitt með að skrifa niður glósur, ég náði alltaf bara byrjununum á setningunum… Mér reyndar finnst það sem stendur á glærunum bara mjög vel útskýrt oftast þannig að mér finnst ekki alltaf alveg nauðsynlegt að fara að skrifa niður einhver auka dæmi sem gellan tekur fyrir ljóskurnar.

Eftir tíma fékk ég að sjá síðasta sálfræðiprófið og ég er bara mjög sátt, það sem ég var alveg viss um að væri rétt var rétt, það sem mér fannst rökrétt var líka mjög oft rétt og þar sem ég var bara alls ekki viss kom meira að segja stundum út rétt. Ef ég hefði skrifað meira í hugtökunum þá hefði ég örugglega getað nælt mér í nokkra fleiri punkta. Muna það næst!

Vá, mér finnst ég vera rosalega andlega fersk og vakandi en ég finn alveg hvernig líkaminn þráir smá svefn… ég held að það væri sniðugt að taka sér smá lúr svo að maður geti virkað eitthvað í ræktinni í dag…

Ah, ég ætlaði að segja frá þróun mála í lýðháskólaskoðun. Ég er búin að kanna skóla í Noregi og Danmörku (er búin að útiloka Svíþjóð) og ég get:

a) farið í skóla til Noregs í heilan vetur, lært alveg heilan helling og kynnst fullt af fólki, verið áfengislaus og kristin,

b) farið í skóla í Danmörku í eina önn, lært alveg slatta og kynnst alveg slatta af fólki, djammað með áfengi og vita ekkert hvað ég eigi að gera seinni önnina….

Það er s.s. áfengi/önn vs. kristni/vetur sem er aðal vandamálið hjá mér. Ég þarf ekkert áfengi, ég er ekki vön að drekka voða oft sko. En ég væri samt alveg til í að hafa kost á því og ég væri líka alveg til í að vera laus við trúnna… Líka ein ástæðan fyrir því að ég djamma ekki mikið er að ég er ekkert voða mikið né oft með fólki sem djammar. En ef ég fer í bara eina önn þá ruglast algjörlega nám og annað, því HÍ tekur ekki in nemendur í sálfræði á vorönn (ég gæti mögulega spurt hvort að þetta nám sem ég er í núna geti gilt eitthvað fyrir fyrri önn í HÍ…)… Já, þetta er endalaust heilabrot :S

Published in: on February 16, 2009 at 13:51  Comments (2)  
Tags: , , , ,

Angels On The Moon

Jæja, nú er maður að fara að leggja af stað suður í vísindaferðina. Við Inga ætlum að rúnta saman suður í hádeginu og komum aftur seinnipartinn á sunnudaginn. Ég verð samt að viðurkenna að ég er ekki alveg að nenna þessu. Það er svo kalt eitthvað og svo virðist vera að stelpurnar þarna fyrir sunnan verða meira og minna uppteknar. Svo líka mundi ég eftir því í gær að ég er ekki með neina hentuga tösku fyrir stutt ferðalag, er núna búin að pakka ofan í hliðartöskurnar mínar tvær, þetta rétt svo hafðist. Svo er þetta líka fyllerís ferð og ég er bara ekki alveg í stuði fyrir drykkju í augnablikinu. Kannski kemur það…

Svo er margt sem maður þarf að versla þarna suðurfrá, þyrfti helst að fá mér ný föt og íþróttaskó og svoleiðis. 

Jæja, best að klæða sig…

Published in: on February 5, 2009 at 11:34  Comments (2)  
Tags: , ,

For You

Það virðist sem að dugnaðurinn við að læra fyrir sálfræðipróf hafi ákveðið að halda áfram. Ég kláraði EIR heimaverkefnið mitt í gær og er búin að lesa hellings í stærðfræðibókinni minni (en ég gafst upp því hún er eiginlega frekar heimskuleg og þetta er ekkert nýtt). Á morgun ætla ég svo að lesa aðeins fyrir EIR og byrja á næsta kafla í sálfræðibókinni. Ég verð samt að segja að mér finnst sálfræðibókin áhugaverðasta bókin af öllu bókaflóðinu í skólanum. Eða mér finnst ég hafa lært lang mest í því fagi. Ég verð samt rosa oft ósátt við kennarann þar sem hún er stundum rosalega þröngsýn. Það er samt eiginlega frekar erfitt að útskýra hvernig, en stundum er eins og hún neiti að viðurkenna að hún heyrði spurninguna vitlaust, eða að hún neiti að leiðrétta sig. Um daginn þá var ein stelpan sem spurði spurningu en orðaði hana ekki alveg nógu vel (hún er frá Færeyjum) og hún þurfti nánast að rífast við kennarann til að fá hana til að skilja spurninguna rétt. Æji, ég get ekki útskýrt þetta alveg nógu vel, en hún (kennarinn) fer amk rosa oft í taugarnar á mér. Sérstaklega þegar hún segir vövðar (í staðin fyrir vöðvar).

Ég er farin að verða virkilega pirruð út í bankann, eða konuna í bankanum, þessa dagana. Ég hefði bara átt að bíða með að sækja um þetta helvítis námslán, þá hefði ég ekki þurft að láta breyta því og ekki þurft að fara svona oft niðureftir til að láta laga peninginn minn. Ég fór niðureftir fyrir tveim vikum síðan, lét breyta þessu drasli (sem, btw, var miklu flóknara en hún sagði að það væri) og hún sagði að það mundi koma inn eftir viku. Ég hringdi loks á fimmtudaginn, þar sem þetta var ekki enn komið, og spurði hvað væri málið, þá náttúrulega þurfti hún að fiffa eitthvað í tölvunni til að þetta kæmi inn á minn reikning. En svo sagði hún mér að ég fengi febrúar skammtinn í gær þar sem 1. feb er á sunnudaginn þannig að ég sagði að ég gæti nú alveg fengið restina af janúar skammtinum bara þá. Ég er enn bara með 56 krónur inni á reikningnum mínum! Ég verð svo pirruð við að hugsa um allt þetta vesen!

Annars er lífið bara gott. Við Inga erum búnar að vera duglegar í ræktinni, ég er búin að vera duglegri í að borða ekki rusl mat, ég er í lúxúsnum heima hjá m&p og mamma fyllti á bensínið mitt í gær. Og pabbi kíkti á bílinn og sagði að það væri ekkert að. Mamma líka keypti sér nýjan tölvustól þar sem mig vantar tölvustól heima (mamma er með minn) og hún sendi mig bara með þennan nýja heim og við skiptum svo í sumar. 

Ég var að skoða myndir af Hrafnkeli og Magna á barnalandinu hans Hrafnkels um daginn, myndir frá því að Keli var lítill, og ég sakna þeirra ekkert smá þessa dagana! Það eru komnir tveir mánuðir síðan ég hitti Hrafnkel síðast og sjö síðan ég hitti Magna. Mér finnst þetta alveg hræðilegt ástand. Mér finnst eiginlega verst að það er svo flókið og svo dýrt að fara til Bandaríkjana að það er tæplega í boði að heimsækja Magna og co., þó svo að manni langi rosalega til þess. En svona er þetta…

Up

Vá, ég er farin að gleyma hvaða lagatitla ég er búin að nota í færslurnar mínar, ég þurfti að kíkja til baka til að athuga hvort að ég væri búin með þetta lag!

Ég er ógðeslega þreytt núna og er búin að vera svona í allan dag. Vanalega þegar ég er svona þá finn ég mér tíma til að taka smá kríu eða ég bara ligg í leti uppi í rúmi. Ég er mjög oft frekar mygluð þegar ég er í svona ástandi. En ekki í dag :) Ég er búin að vera svo dugleg í dag að ég er svo stolt af sjálfri mér! 

Fyrst: ég kláraði kaflann eins og ég ætlaði mér að gera í gær (sko kaflann sem við vorum að stúdera í dag, ég hef ekki haft orku í að klára kaflann fyrir tíma síðan ég byrjaði!). Þessi kafli var líka þokkalega áhugaverður (eins og Inga hefur fengið að heyra, ég er búin að ausa úr mínum viskubrunni í allan dag :P ), fjallaði um drauma, svefn, recreational lyf og svoleiðis. Mér finnst það áhugavert. Svo vaknaði ég í morgun klukkan 8 til að lesa kaflann á undan á meðan ég hlustaði á súper (eða ég hlustaði á súper og las svo þegar það voru auglýsingar og tónlist) og ég náði að klára þokkalega mikið fyrir klukkan 11, þá fór ég niður í Bakaríið við brúnna og fékk mér hollustu í hádegismat. Svo hélt ég af stað í skólann og ég náði að glósa alveg slatta (var samt pínu erfitt að fylgjast með því ég var svoooo þreytt).

Eftir skóla dreif ég mig með Ingu niður í Átak og við löbbuðum (Inga hljóp) í hálftíma og svo tókum við vel á vöðvunum okkar!! Hehe :P Svo þegar við vorum búnar að kæla okkur niður og teigja á þá fengum við okkur hollustu í andyrinu, nammi namm. Þegar ég kom heim var ég svo góðu skapi og það hefur ekkert dvínað síðan! Ég er búin að vesenast niður í bæ og versla í matinn og svona og ég finn alveg hvernig vöðvarnir mínir eru aumir eftir þetta púl, en mér líður svo vel. Þetta er svona rétt mátulega vont :D  

Svo held ég líka að ipodinn minn sé að deyja :( Amk er alveg svakalegt að reyna að fá hold takkann til að sleppa takinu… Það finnst mér frekar stór ókostur á svona tæki. Ég held að það sé að verða kominn tími til að fá sér nýjan.

Published in: on January 27, 2009 at 18:45  Comments (2)  
Tags: , , , , , , , , ,

Poker Face

Mig vantar:

  • nýjar íþróttabuxur (fyrir átakið)
  • nýja íþróttaskó (fyrir átakið)
  • nýjan íþróttabrjóstarhaldara (ekki nauðsyn en þessi sem ég á er síðan god knows when og mér finnst hann eiginlega ekki standa sig í stykkinu)
  • nýja boli (já í fleirtölu)
  • nýja peysu (ein ætti að vera nóg, en það væri ágætt að geta breytt stundum til)
  • nýjar buxur (í fleirtölu, mínar eru allar meira og minna götóttar í klofinu)
  • bók fyrir skólann
  • dagbók (day planner, ekki diary)
  • restina af peningnum sem bankinn lofaði mér

Mig langar í:

  • mest allt hér að ofan
  • nýjan ipod
  • Me and Armini með Emiliönu Torrini
  • Emami kjól (mig reyndar langar bara mest í að fá einn svoleiðis í láni svo að ég geti gert svoleiðis sjálf og sparað mér hellings pening)
  • tíma í litun og plokkun
  • miða í heimsreisu
  • að kreppan hafi aldrei orðið og sjá svo hvar ég stæði í dag

Já, ég held að það sé komið. Í dag er ég að fara með Ingu að kaupa kort í Átak og við ætlum að vera ógeðslega duglegar að mæta í ræktina! Dagný er líka ógeðslega dugleg og er búin að snúa íbúðinni við til að sópa og skúra og alles! Svo er veðrið líka svona líka fínt í dag og þegar ég horfi á Vaðlaheiðina út um gluggann (ég er nefnilega með þokkalega amazing útsýni hérna í herberginu mínu (verst samt að það er líka frekar fjölfarin gata beint fyrir utan gluggann þannig að ég get ekki sofið með gluggann opinn)) þá langar mig geggjað mikið til að dressa mig upp og fara á snjósleða.

Published in: on January 26, 2009 at 14:07  Comments (9)  
Tags: , , , , , , , , , ,
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.