Cold Desert

Kominn tími á blogg? Já ég held það bara. Og vissulega er eina skiptið sem ég hef nennu í að blogga þá er ég í skólanum :S En það eru frímínútur og ég er búin að hugsa um að blogga í alveg dágóðan tíma. Annars verð ég að segja að ég er mjög sátt við kommentaflóðið á síðustu færslu!

Jæja, fyrsta alvöru vikan er á enda (því ég er í fríi á föstudögum) og þetta leggst svona misvel í mig. Hópurinn sem ég er með í aðferðafræðinni er bara fínn, svona ennþá þá hef ég bara flotið með (feimni) og þær alveg hjálpa mér að yfirstíga feimnina, sem er bara frábært. Ég er búin að vera þokkalega dugleg líka að lesa, byrjaði um daginn að fara yfir efnið eins og sálfræðibókin segir að maður eigi að fara yfir efnið en ég held að mér finnist þægilegra að lesa kaflann eftir tímann, því þá skil ég betur kaflann og mér finnst þetta yfir höfuð áhugaverðara þegar ég er komin með smá grunn. Ég fann þetta eiginlega mjög vel þegar maður las Hamlet í 4.A og líka í rauninni þá lenti ég oft í því að mér fannst sumar bækurnar frekar áhugaverðar þegar ég var að lesa þær helgina fyrir próf…

Ég fór í fyrsta sálfræðitímann á mánudaginn og ég fékk algjört stresskasst. Eftir tímann fór ég gráti nær niður á Glerártorg, keypti mér herðatré (út af því að mig vantaði svoleiðis) og svo gommu af nammi og gosi. Þegar ég kom heim þá var mér farið að líða aðeins betur og ég borðaði nú ekki allt nammið mitt. Ég er svo búin að taka það námskeið í sátt, ég er búin að heyra fullt af fólki sem ætlar ,,bara” að lesa sálfræði bókina, ekki hinar bækurnar, eða lesa bara glósurnar og svoleiðis. Þannig að námið er ekki alveg jafn alvarlegt og kennararnir eru búnir að segja (jú, ég veit að þetta er alvarlegt og þannig, en þetta er ekkert til að panica yfir). 

Eigindlegar rannsóknir hljóma bara alveg ágætlega, svolítið mikið af greinum sem við þurfum að fara sjálf og ljósrita, en svo er fullt af verkefnum sem verða eflaust áhugaverð þó svo að þau ýti undir feimnina. Og bæ ðe vei þá er það ekki eins og að smella fingrum að komast yfir feimni og ,,láta sig hafa það.” Málið við feimni er það að maður getur ekki látið sig hafa það án þess að fá stresskast dauðans og oft er það þannig að þegar maður getur hugsað sér að láta sig hafa það þá er momentið farið. Survival of the fittest, það eru þeir sem eru ekki feimnir sem láta raddir sínar heyrast og láta sig hafa það. Ef þú lætur þig hafa það þá ertu ekki full on feimin!

Ég er oft mjög opinská á blogginu mínu og á facebook, en það er algjörlega af því að ég get tekið minn tíma í að skrifa það sem ég vil segja, það kemur ekki hálvitalega út eins og kemur stundum fyrir þegar maður er í alvöru samræðum. Ég held að það séu tvær manneskjur í öllum heiminum sem ég get sagt nákvæmlega hvað sem er, orðað það hvernig sem er og ekki liðið eins og hálvita. Þegar ég tala við alla aðra þá þarf ég að hugsa vel um það sem ég ætla að segja og oft ef ég tek sénsinn og byrja að segja eitthvað sem ég er ekki alveg viss um hvernig endar þá panica ég þegar ég átta mig á því og vonast til þess að ég komi einhverju vitrænu út úr mér. Þetta er alvarlega heftandi ástand að vera svona feimin. Við Inga erum mjög svipaðar að þessu leiti og þegar ég áttaði mig á því að eina fólkið sem við töluðum við úti í Bretlandi var fólk sem við ætluðum að leigja hjá og fólk í afgreiðslu þá var ég miður mín. Jú, við töluðum við kannski tvær eða þrjár manneskjur sem við deildum herbergi með. Það er ekki eins og ég vilji vera svona feimin og félagslega heft, en það þarf bara svo rosalega drastískar breytingar til að ég geti mögulega komist yfir þetta. Og ég verð að segja að ég hef farið framförum á síðustu fjórum árum.

Já, þetta blogg átti að vera um námið mitt en það hefur breyst aðeins… Bara svona í lokinn (út af því að ég er búin að tala um öll hin námskeiðin) þá held ég að upplýsingarýnið verði ömurlegasta fagið. Einhverskonar heimspekilegur áfangi, sem mér finnst svosum áhugavert þannig séð, en heimspeki er oft of freðin til að ég skilji hana, eða þ.e. þegar annað fólk er að tala um eitthvað í heimspekilegum tóni þá finnst mér ég freðna upp og vera með IQ 20…

Whatever You Like

Já já, þetta er allt að byrja. Ég er komin til Akureyrar, var ekki lengi að skella drasli ofan í töskur og ganga svo frá því í gær. Herbergið er samt frekar ópersónulegt, fyrir utan bleika lampann minn á náttborðinu (og margt dót hér og þar á borðum, blöð og tölvu drasl). Dagný tók vel á móti mér, var búin að taka frá hillur inná baði og í ísskápnum og svoleiðis. 

(Oh, það á eftir að taka endalaust langan tíma  að skrifa þetta blogg, er að spjalla á msn, hlusta á tónlist og kroppa í sár á vörinni :S)

Já, ég þurfti aðeins að snúast þegar ég kom í bæinn í gær, þurfti að kaupa netsnúru, lak á nýja risastóra rúmið (það er HUGES, amk finnst mér það þar sem ég hef alltaf bara sofið í einföldu, 120*200cm rúmi) og eitthvað af mat. Svo fór ég með Ingu í bæinn áðan, kíkti í bankann og betlaði pening, keypti bensín og svo bækur. Vó shit, stafli af nýþungum bókum kostaði alveg slatta. Get ekki beðið eftir að byrja að lesa þetta *kaldhæðni*… En ég ætla að vera dugleg að lesa þetta hlass svo að ég geti lesið eitthvað skemmtilegt líka.

Ég verð samt að segja að áðan þegar ég var að merkja bækurnar mínar (litakóðun svo að ég muni hvað er í hvaða fagi), sat hérna við litla skrifborðið mitt, þá fannst mér ég vera eins og Elva systir, hún er the ultimate háskólanemi í mínum huga… Líka með tölvuna fyrir framan mig, útvarpið í gangi, í einhverskonar setustellingu sem mér finnst vera ekta hún. 

Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að skrifa hérna, en ég man það ekki núna. Endilega verið samt dugleg við að kommenta!

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Jungle Drum

Gleðileg jól öllsömul. Þessi jól voru by far skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Mér finnst samt eins og maður hugsi á hverju ári ,,þessi jól verða nú skrítin…” út af því að einhver var að bætast við í fjölskylduna eða einhver systirin ætlaði að vera annarstaðar um jólin, en nú vorum við bara þrjú. Það var samt alls ekki of mikið af mat (er einhvern tímann hægt að elda of mikið af hamborgarhrygg??). Og eftir kvöldmat fékk ég rétt að aðstoða við að ganga frá matnum, eins og venjulega (í staðin fyrir Elvu planteraða fyrir framan uppþvottavélina var mamma komin í staðin, ég gat ekki farið ein í að ganga frá!). Svo hrúguðum við pökkunum á stofuborðið og hentum pökkum í hvort annað. Það var síðan mjög erfitt að fá mömmu til að opna restina af pökkunum eftir að hún tók upp fartölvuna sem hún fékk frá pabba.

Ég var mjög sátt við jólapakkana þetta árið, ég fékk þrjár bækur (er búin að lesa tvær (önnur var samt svo pínu lítil, maður var ekki lengi með hana)), konfekt og bolla og sturtu dæmi. Svo fékk ég ilmvatn í ,,möndlugjöf” sem ég er enn að venjast, en það er voða bleikt og lyktar alls ekki illa. Ég er samt orðin svo háð bókum þessa dagana, enda líka ágætt að drífa sig í gegnum bækurnar sem mig langar til að lesa áður en ég festist við skólabækurnar aftur. Það er bara svo ótalmargt sem mig langar til að lesa núna en ég gleymi því jafnóðum ef ég skrifa það ekki niður.

Ég fór í bíó með Ingu og Kolfinnu um daginn, við fórum á Yes Man. Hún var bara mjög góð, ótrúlega fyndin og létt. Það er alveg óneitanlega þægilegra að horfa á myndir í bíói en heima í tölvunni, eða í sjónvarpinu. Þegar ég er inni í bíósalnum þá hugsa ég um eiginlega ekki neitt annað en myndina á tjaldinu. Ég gleymi alveg stað og stund. Þegar ég er heima og horfi á bíómynd eða þætti þá verð ég helst að hafa eitthvað annað að gera. Ég er mjög oft að skoða eitthvað annað á netinu (get samt ekki lesið neitt því þá missi ég þráðinn), fer í tetris eða bubbles. Mig langar rosalega til að taka aftur upp á því að prjóna, en ég veit ekki hvað það ætti að vera. En þessi athyglisbrestur veldur því oft að ég naga neglurnar (þær eru reyndar ótrúlega fínar núna, alveg eins og þær voru þegar við vorum í London).

Eftir áramót byrjar svo skólinn, 7. janúar… Verð svo fjóra daga vikunnar í skólanum, verð væntanlega í fríi á föstudögum. Ég er svona aðeins farin að leita að húsnæði á Akureyri, er samt ekkert að flýta mér, en það er ekkert æðislega spennandi að hugsa til þess að fara með rútunni, fyrir utan að það er alls ekki víst að rútan fari í skólann eftir áramót. Og það kostar líka jafnvel meira en almenn mánaðarleiga á herbergi. Ég er búin að fá eitt spennandi svar við auglýsingu sem ég henti inn á dagskrain.is. Svo hef ég líka heyrt um herbergi hjá kennara úr MA sem er alveg spurning um að skoða. En ég er ekkert að hafa áhyggjur, þetta reddast.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.