LoveGame

Já, það bara gengur ekkert að blogga þessa dagana. Ég er rosa lengi búin að vera alveg að fara að blogga, en svo gerist ekki neitt. Ekki það að það er fullt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Ég er ljóshærð. Alveg rosa ljóshærð (finnst mér) og hárið er eitthvað svo stutt. En ég er mjög ánægð. Ég líka er byrjuð að nota linsur annað slagið, er að venja mig við það. Ég er samt sannfærð um það að linsurnar séu aðeins of stórar, amk er það tilfinningin sem ég fæ.

Júbileringin var frábær! Það var svo gaman og svo furðulegt eitthvað að hitta alla aftur, mér fannst stundum eins og það væri ekki heill vetur síðan ég hitti þau öll, pínu eins og að stökkva eitt ár aftur í tímann. Ég er líka enn hissa á því hversu mikið ég drakk þessa daga, það var alveg ótrúlegt magn sem fór ofan í mig. Það var samt ekkert sem var eitthvað über merkilegt sem gerðist svona eftir á að hyggja, en þetta var klikkað skemmtilegt. Og pínu sorglegt þegar við tókum hvíta kollinn af.

Ég er loksins búin að sætta mig við misheppnuðu ferðina síðasta haust. Ég nefnilega áttaði mig á því um daginn að ef að ferðin hefði farið eins og áætlað var, þá hefðum við Inga ekki komið heim fyrr en rétt fyrir 16. júní, ég hefði örugglega ekki fengið vinnu á hvalasafninu og þá hefði ég ekki kynnst öllu þessu frábæra fólki sem vinnur hérna. Mér hefur fundist fólkið síðustu ár alveg verið skemmtileg, en þau sem eru núna, þau eru bara æði. Vissulega er erfitt að tala við ítölsku stelpuna þar sem hún talar ekkert voða góða ensku, og svo er svissneska stelpan sem endurtekur allt sem maður segir á meðan maður er að tala (það er virkilega pirrandi til lengdar, en hún er mjög fín). Bandarísku stelpurnar eru að keppast um það hvor getur talað meira (þær eru svo mikið æði!). Þær líka halda að hin íslenska stelpan sé ekki alveg að fatta húmorinn þeirra, þ.a.l. líkar þeim betur við mig (hah! :P ). Þær líka rífast um það hvorum hópnum ég tilheyri (team awesome eða team richous (held ég), þær eru sko í sitthvorum hópnum og við Guðrún tilheyrum hvorugum) og eru líka að reyna að sannfæra mig um að mig langi frekar að fara til Bandaríkjana að læra heldur en Bretlands. Æji þau öll sömul gera lífið aðeins skemmtilegra, tala nú ekki um vinnuna :)

Ég veit eiginlega ekki hvað meira ég hef að segja… Magni er kominn til landsins, en kemur ekki norður fyrr en í byrjun júlí. Hrafnkell og Edda koma… fljótlega :P Ég man ekki dagsetninguna, en það verður ágætt að fá þau.

Já, þetta er allt voða voða gaman. Fljótlega (vonandi) fæ ég að vita meira um háskólann, ég er ennþá númer 31 á biðlista hjá stúdentagörðunum. Við Inga ætlum s.s. þangað (nema einhver geti bent okkur á ódýrt húsnæði fyrir okkur báðar…)

Nóg í bili held ég, bis Später :)

Supermassive Black Hole

Ég held að ég sé að drepa bloggið mitt hægt og rólega. Það er endalaust langt síðan ég bloggaði síðast og ég er heppin ef að 20 manns heimsækja bloggið yfir daginn.

Ég endur-uppgötvaði Muse um daginn og ég hef ekki getað hætt að hlusta á strákana síðan. Allan daginn út og inn. Já ókei, nema þegar ég er í vinnunni, svona helst.

Það stefnir allt í frábært sumar. Nánast allir sjálfboðaliðarnir eru komnir (bara ein stelpa sem á eftir að koma) og þetta er bara alveg fínasta fólk. Eiginlega bara frábært fólk. Bandaríkjamennirnir eru svo skemmtilega kaldhæðnir og Þjóðverjarnir gera sitt besta til að halda í við þá, það er stundum alveg hreinasta snilld að hlusta á samtölin sem eiga sér stað! Ein stelpan er alveg æði, hún bara stoppar ekki! Alltaf af og til segir hún eitthvað svo random að maður situr bara þarna og hugsar WTF! Haha já, þetta verður held ég alveg ágætt sumar vinnulega séð :)

Svo er ég svo heppin að ég fæ að hafa alla litlu frændur mína á klakanum í sumar, Magni kemur til Íslands 21. júní (??) og kemur vonandi í Teginn fljótlega eftir það, og svo er Edda að koma með Hrafnkel einhvern tímann eftir það (man engar dagsetningar núna…) sem er náttúrulega bara frábært. Svo er Hartmann litli alltaf að stækka og stækka (og btw þá kom einn Hartmann inn á safnið um daginn, örugglega 6-7 ára gamall… mér fannst það merkilegt :P ) og við erum búin að ná vel saman á skiptiborðinu ;)

Eftir viku er svo júbilering! Shit fokk hvað ég hlakka til! Bekkjapartý á laugardaginn, árgangs-útilega á sunnudeginum, annað bekkjarpartý/gathering á mánudeginum og svo aðal veislan á þriðjudeginum! Ég er svo í fríi 17. og 18. júní þannig að ég hef nægan tíma til að vera þunn :D Gosh og svo fær maður að hitta fleira fólk heldur en bara Inguna (ekki það að það sé slæmt að hitta Inguna, við bara höfum sagt allt sem við höfum að segja við hvor aðra þessa dagana :P ).

Ég bókaði tíma í litun og klippingu á þriðjudaginn. Þetta er heljarinnar afrek þar sem ég skipti um skoðun minnst þrisvar á dag hvort ég vilji klippa hárið eða ekki. Mér finnst gaman að vera með sítt hár (mér hefur aldrei tekist að vera með það lengra en það er núna) en svo fer það svo í taugarnar á mér en ég vil helst ekki hafa hárið í teygju á almanna færi (mér líkar ekki við profilinn minn) og það er bara vesen. En núna ætla ég að klippa það aðeins (alls alls ekki stutt stutt, en styttra) og ég ætla að setja strípur. Nú er samt aðal vandamálið. Ég get ekki ákveðið mig hvort ég vilji lýsa á mér hárið eða dekkja það. I’ve done the darker thing en ég man ekki eftir því að hafa viljandi lýst á mér hárið.

Hvað segið þið? Á ég að lýsa á mér hárið eða dekkja það???

Draumurinn um Nínu

Mig dreymdi frekar óþægilegan draum í nótt.

Ég var í einhverju húsi, þetta var pínu eins og að vera í tölvuleik vegna þess að þegar ég gekk í gegnum einar dyr þá var ekki víst að ég mundi lenda aftur á sama stað þegar ég færi aftur í gegnum þær. Þetta hús var líka mjög creepy þannig að ég var pínu hrædd, sérstaklega út af því að ég sá enga leið út úr því. Það var alltaf einhver hreyfing framundan eða á bak við mig þannig að ég var alltaf bara að reyna að koma ekki upp um mig, ég átti ekkert heima þarna og mátti eflaust ekki vera þarna. Svo man ég að þegar ég fór út úr svefnherberginu og út í garð þá tók ég eftir konu, þetta var húsmóðirin á bænum. Ég flúði aftur inn í svefnherbergið (já, ég náði að komast aftur til baka) og þar var fullt af fólki og þetta var eins og ég væri stödd um aldamótin 1900. Þarna var húsmóðirin sem var Natasha Richardson, leikkonan sem dó í gær/nótt og eiginmaður hennar, Joshua Jackson, sem lék í Dawson’s Creek. Natasha var ekki langt frá mér en hinumegin í herberginu var Joshua og “faðir” hans (amk var svona eldri karl þarna, ekki ógeðslega gamall en þessi gaur var greinilega höfuðið á bænum) og þeir stóðu við borð þar sem á lágu nokkur börn. Þetta voru börnin þeirra Natöshu og Joshua. Þau áttu einhver sex börn, mér finnst eins og þau hafi legið á borðinu öll og þau voru öll svipuð að stærð en samt einhvernvegin þá sé ég líka aldursmun á þeim. Krakkarnir áttu að vera alveg upp í 6 ára gömul, en börnin á borðinu voru bara nokkura mánaða.

Hér kemur samt það sem var truflandi. Joshua og faðir hans voru að rífast um börnin en samkvæmt föðurnum þá voru þau búin að eignast of mörg börn. Faðirinn labbaði í kringum börnin og valdi yngsta barnið og tók um höfuðið á því og þegar ég áttaði mig á því hvað hann var að gera þá gat ég ekki horft á þetta og snéri mér undan, nema út af því að þetta var minn draumur þá sá ég þetta eins og bíómynd fyrir framan mig, þó svo að minn karakter snéri sér við þá sá ég þetta samt. Hann snéri barnið úr hálsliðnum. Hann gerði þetta aftur við næst yngsta barnið. Joshua var brjálaður og Natasha bara grét. Ég náði loks að hlaupa út og einhvernvegin komst ég inn í einhvern skemmtigarð þar sem fólk úr MA var og fólk úr hvalasafninu. Þar samt var ég líka bara endalaust á hlaupum og reyna að komast einhvert og ég hitti fullt af fólki. Mér finnst þessi hluti ekki eins merkilegur út af því að hann situr ekki eins mikið í mér.

Það truflar mig pínu að ég næ ekki að átta mig á þessum draum, hvað hann eigi að merkja (ekki það að ég haldi að draumar spái fyrir, ég trúi frekar á það að draumar séu undirmeðvitundin að fara yfir vandamál og annað þannig lagað). Mér finnst ég ekki vera búin að hugsa það mikið um Natöshu (og alls ekkert um Joshua) að það trufli mig það mikið að mig dreymir barnadauða út af henni.

Published in: on March 19, 2009 at 11:20  Comments (3)  
Tags: , , , , , ,

Supermassive Black Hole

Long time, no blog…

Já já, ég er í einhverju skrítnu skapi í dag. Ég er rosalega hress eitthvað, þrátt fyrir aðeins tveggja tíma svefn í nótt (fullur af draumum, urr…)! Ég nefnilega var með ömurlega magakrampa í nótt, ekki gaman. En, um helgina ætlar Ragna að vera rosa rosa dugleg:

Hún ætlar að…

  • Reikna alveg heilan helling fyrir aðferðafræði próf
  • Skrifa ca. 200-300 orð fyrir aðferðafræði rannsóknarskýrslu
  • Skoða töflur fyrir sömu skýrslu og hugsanlega reyna að segja einhver falleg orð um þær
  • Fara í ræktina í dag, á morgun og á sunnudaginn (klukkutíma í dag, hálftíma á morgun og hinn)
  • Heimsækja óléttu systur mína
  • Lesa eina sögu eða svo
  • Kannski jafnvel lesa í sálfræði
  • Vera kát og hress og bjartsýn :)

Já, svona ætla ég að vera dugleg. Það er samt lítil rödd in the back of my mind sem segir mér að ég eigi ekki eftir að vera svona dugleg, en hey, ég kláraði að lesa 6 kafla í AÐF og einn í ALM í þessari viku þó svo að ég vissi að ég gæti mögulega frestað því þangað til að helgin kæmi! Þess vegna hef ég alveg ágæta tilfinningu gagnvart þessu plani.

Ég verð samt að segja, ég er búin að lesa alla kaflana fyrir næsta hlutapróf í AÐF og fara í gegnum mest allt í SPSS (forritið sem við eigum að nota og þekkja) og mér finnst ég skilja þetta allt, þetta er rosa mikið straight forward, en mér finnst eins og allir í kringum mig séu að stressa sig svo mikið yfir þessu að ég er að pæla hvort að eitthvað sé að fara fram hjá mér. Ég verð reyndar líka að segja að þessa fáu tíma sem ég hef mætt í þá hef ég oftast setið og hlustað á kennarann og hugsað “shit” en þegar ég les kaflann þá finnst mér þetta ekkert mál. Mér líka finnst kennarinn tala rosa mikið eins og hún sé að tala við eintómar ljóskur. Ég á erfitt með að hlusta á kennara sem tala bara við heimska  fólkið (eða þúst, fólki sem skilur ekki einföldustu hluti) því að þegar þeir byrja að útskýra þá finnst mér þetta flækjast. Þá fíla ég mig heimska. Og það er ekki gaman. Reyndar gerir bókin þetta líka (og þegar ég hugsa út í það þá finnst mér pínu kaldhæðnislegt að kennarinn sagði í byrjun að bókin “talar niður til okkar” – það væri hennar helsti galli…) en það er auðveldara að lesa aftur og aftur og aftur útskýringarnar í bókinni en að þurfa að ákveða hvaða útskýringu maður vill hlusta á hjá kennaranum… Eða æji, ég er eiginlega bara frekar fegin að ég er ekki búin að mæta neitt rosa mikið (en það kemur svosum í ljós eftir mánudaginn hvort að það hafi borgað sig :P )

Oh ég sver það, ég held að ég verði að fara að taka mig á í blogginu, ég er bara með enga síu þegar kemur að því að skrifa á bloggið, ég læt bara allt flakka. Eða svona næstum allt. Þetta minnir mig pínu á eina bekkjarsystur mína úr MA :P

Jæja, ætli þetta sé ekki ágætt í bili

Published in: on March 13, 2009 at 12:44  Comments (1)  
Tags: , , , , , , ,

Never Think

Ég er búin að ákveða mig, já eða ég er búin að ákveða mig í dag, ég hef á tilfinningunni að þetta eigi eitthvað eftir að breytast því að allt breytist á endanum finnst mér.

Þegar ég er búin í skólanum ætla ég að vinna eins og mó fó og skemmta mér jafn mikið. Það stendur til að árgangurinn hittist og liggji úti rétt fyrir 16. júní, svo er náttúrulega júbíleringin þar sem maður fær að taka hvíta kollinn af (og verður ekki lengur nýstúdent :( ). Svo á ég náttúrulega 5 ára útskriftarafmæli úr Hafralækjarskóla og við ætlum að hittast og skemmta okkur. Ég nenni líklegast ekki á Hróaskeldu (kannski næst samt) en það er spurning hvort að maður skelli sér til Eyja, maður er búin að ætla sér þangað síðastliðin fjögur ár eða svo. Svo verður vonandi eitt ættarmót eða tvö.

Næsta haust ætla ég bara að spila eftir hendinni, ætla bara að vinna eins lengi og þær vilja hafa mig á safninu, svo held ég að ég bara geri eitthvað skemmtilegt. Heimsóknir til Noregs, Danmerkur og Bretlands er alveg inn í myndinni, veit um nokkrar systur sem hugsanlega vilja lána manni sófa eða dýnu. Kannski maður bara fari á couchsurfing og fari bara þangað sem hugurinn girnist ;) Ég meina, ég hafði það af í einn og hálfan mánuð í Bretlandi þegar pundið var sem hæst á bara sumarlaununum mínum, þar með talið gisting (sem er kostnaður sem gæti minnkað ef ég fæ sófapláss) þannig að ég get eflaust gert eitthvað skemmtilegt fram að jólum.

Eftir jól… hugsanlega lýðháskóli, eflaust í Danmörku. Kannski verð ég heppin og vinn í lottói og ferðast meira, eða heppin á einhvern annann hátt. Hver veit, ég ætla ekki að plana svona langt fram í tímann. Segjum bara að lýðháskóli sé plan B.

Þangað til ætla ég að byrja aftur á umsóknarferlinu sem ég fór í gegnum í fyrra sumar, ég ætla að redda mér eitt stykki IELTS eða TOEFL prófi og sækja um í ensku (bókmenntir og creative writing). Yes sir, það er planið eins og er.

En að öðrum fréttum, ég var að uppgötva það að ég er búin með 9 vikur í skólanum og eftir standa 6 vikur (7 vikur með páskafríi) þangað til prófin byrja. Oh hvað það er gott að vita að ég er svona nánast komin yfir hæðina, nú er þetta bara niður í móti. Reyndar er þessi eina og hálfa vika bara brjáluð, byrjaði á sálfræðiprófi á fimmtudaginn (fokk), þurfti svo að skila verkefni í gær (við byrjuðum á því á sunnudaginn, það var frekar misheppnað), próf á morgun (based on common knowledge en maður þarf samt að kunna hugtökin á þessi common knowledge…), klára tippaviðtal fyrir föstudaginn og gera fyrirlestur og svo flytja fyrirlesturinn á mánudaginn. Svo er viku frí fyrir næsta aðferðafræðipróf. Svo fer bara að styttast í að Valdís eigi að eiga og Edda kemur heim með sína fjölskyldu og svo (fáránlega stutt) páskafrí :D og þá er geggjað stutt í lokapróf og þessum hræðilega vetri (með nokkrum undantekningum) verður lokið.

In Another Life

Ég veit ekki alveg hvort að ég eigi að þora að blogga núna, þessi færsla verður svo sjálfmiðjuð og emó og persónuleg að það hálfa væri nóg. Og ég verð að segja það strax að ég vil engin meðaumkunar né ,,þetta reddast” komment! Ég vil bara eitthvað kraftaverk…

Ég held að ég sé of mikið ein þessa dagana. Ég hef svo mikinn tíma til að hugsa og velta mér upp úr hlutunum. Ég hef aldrei verið svona (vegna skorts á betra orði) þunglynd og ég hef verið síðustu daga og vikur. Og aldrei jafn slæmt og í dag. Ég hef lengi haldið því fram í huganum að ég fái þunglyndis köst, alltaf verið sorgmædd af og til í gegnum tíðina, því það er jú eitt og annað sem manni finnst ömurlegt í lífinu en ég hef samt alltaf haft markmið og sagt við sjálfa mig að þetta breytist eftir x langan tíma. Núna finnst mér þetta bara allt svo vonlaust. Og ótrúlegt en satt þá er það ekki út af því að ég er orðin eldri eða út af því að ég kláraði peninginn minn um helgina. Hvað er það þá? …

Mér finnst ömurlegt að ég sé búin að sætta mig við að vera í skóla. Ókei, það er allt í lagi að vera hérna, námið er fínt og fólkið er fínt, en ég bara vil ekki vera hérna. Mig langar að læra sálfræði en ég ætlaði mér að fara í nám þegar ég væri tilbúin (eða eftir árs frí) og ég er bara ekki þar. Mig vantar algjörlega þann drifkraft sem þarf til að standa sig vel í námi. Ég vil að mér finnist það ekki vera í boði að skrópa í tímum eða sleppa því að lesa. Mig langar til að hætta bara hér og nú, ekki út af því að þetta sé erfitt heldur út af því að ég er bara ekki tilbúin til að læra þetta, ég er ekki búin að gera það sem ég ætlaði að gera.

Þessi vetur átti að vera svo æðislegur. Ég ætlaði að læra að tala frönsku og þýsku, ætlaði að bakpokast um Ítalíu, hjá mér var alltaf möguleiki á að ég mundi bara ekki koma heim næsta sumar, þetta ferðalag var eitthvað sem ég ákvað í 2. bekk að gera út af því að lífið var líka ömurlegt þá. Ég hreinlega man ekki hvað gerðist daginn sem við ákváðum að koma heim. Ég man ekki hvernig mér leið þegar við bókuðum miðana heim. Ég man bara að þegar við vorum að fara þá vissi ég að ég væri að gera einhver mistök. Ég sé svo ógeðslega mikið eftir því að hafa farið heim. Ég sé svo eftir því að hafa ákveðið að fara í skóla (þó að ég sjái svosum ekki eftir því að hafa ekki haldið áfram með au pair dæmið). Ég er orðin þreytt á að lesa um ævintýrin sem samnemendur mínir úr MA eru að ganga í gegnum víða um heiminn. Ég er stanslaust að reyna að finna einhverja leið til að komast í burtu af klakanum. M.a. að sækja um í þriggja ára námi í fatahönnun í London/París/Milanó, eða kannski bara Lýðháskóla í Danmörku (eða Noregi, það væri alveg spurning…)… En samt, mig langar ekkert sérstaklega að fara í skóla…

Hvað á ég samt að gera þangað til? Ég veit að allir hugsi að auðvitað á ég bara að þrauka í gegnum þessa önn en í augnablikinu þá hef ég bara ekki þann drifkraft til að læra og standa mig vel í náminu. Ég er að fara í próf á fimmtudaginn en samt nenni ég ekki að læra fyrir það, ég er eitthvað svo ligeglad. Ég veit líka ekkert hvað gerist svo við námslánin ef ég næ ekki öllum einingunum eða ef ég ákveð að fara ekki í skóla næsta haust…

Ég veit að ég er að gera þetta flóknara en það þarf að vera en í mínum huga þá er staðan ómöguleg eins og hún er í dag. Ég veit líka að maður getur ekki gert neitt án þess að það kosti pening (og það er m.a. ein ástæðan fyrir því að mér líður svona ömurlega í dag) en mér finnst eins og ég þurfi annað hvort að eyða hellings af peningum eða einfaldlega breyta mínum persónuleika.

Published in: on February 9, 2009 at 17:20  Comments (3)  
Tags: , , ,

Untouched

Ó hvað það fer í taugarnar á mér trefillinn hjá kennaranum. Mér fannst eins og hann hefði verið frekar jafn en núna er hann svo ójafn og mig langar svo mikið til að labba upp að henni og laga.

Ég hef smá samviskubit yfir því hversu lítið ég lærði um helgina. Þriggja daga helgi og ég las ekki neitt. Ég tók fulla tösku af bókum með mér heim til m&p til að lesa eitthvað en nei, ég eyddi öllum tímanum í tölvuleik. Góð. Ég samt hef alltaf vitað það að ég get ekki lært þegar ég er heima í sveit. Gerði oft þau mistök að fara heim fyrir próf í MA og lærði svo ekki neitt. (Og það eru bara sálfræðilegar ástæður þar að baki sko!) Og það versta er að ég nenni eiginlega ekki að lesa neitt á eftir. En ætli maður reyni ekki að lesa eitthvað. Eftir hádegismat og smá lúr ;)

Ég hef samt eiginlega ekkert uppbyggilegt að segja. Mig langaði bara aðeins til að tjá mig…. Ég er farin að hlakka pínu til afmælishelgarinnar (ekki afmælisins sjálfs, enda plana ég að vera þunn þá), vonandi hefur maður tækifæri til að safna saman gellunum þarna fyrir sunnan (þið gellur hérna fyrir norðan eða austan megið alveg drífa ykkur þangað ef ykkur langar að vera memm), það er nefnilega vísindaferð. Dagsetningarnar sem ég sá gefa til kynna að það verður lagt af stað á fimmtudegi og komið til baka á mánudegi, en ég er ekki alveg viss hversu áreiðanlegar þær upplýsingar eru. Þetta verður (vonandi) svakaleg helgi og ég sé fram á að þurfa að heimsækja ríkið eitthvað aðeins.

Published in: on January 19, 2009 at 11:38  Comments (5)  
Tags: , , , , , , , , , , ,

Hmmm…

Mamma kom í bæinn í dag og ég fór með henni í gegnum password og username flóðið sem fylgir því að vera í Háskólanum á Akureyri. Við fórum svo í bæinn og ég græddi nýja skó (ég var eiginlega komin í gegnum hina skónna) og eitthvað af vistum. En þegar ég sat með mömmu í skólanum þá allt í einu sá ég ákveðið munstur… here goes:

Grunnskóli – mamma er kennari, kenndi mér m.a. heimakrókartíma, heimilisfræði og handavinnu.

Menntaskóli – Valdís er kennari, kenndi mér samt bara einn áfanga, en samt…

Háskóli – alveg ákveðin framför en samt, mamma er núna orðin samnemandi minn (við erum samt ekki nálægt því í eins námi eða neitt)!

Ég bara fæ ekki að vera alveg ein í skóla… Það er spurning hvað gerist næsta haust þegar ég fer suður (ég ætti kannski að íhuga nám í Manchester, eða elta Eddu hvert sem hún mun fara…) Kannski er það bara ég sem elti mitt fólk? Ég var samt búin að ákveða að fara í MA áður en Valdís sótti um starfið og ég vissi ekki af því að mamma ætlaði í nám í HA fyrr en eftir að ég sótti um!

Published in: on January 9, 2009 at 18:38  Comments (1)  
Tags: , , , , , , , , , , , , , ,

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Jungle Drum

Gleðileg jól öllsömul. Þessi jól voru by far skrítnustu jól sem ég hef upplifað. Mér finnst samt eins og maður hugsi á hverju ári ,,þessi jól verða nú skrítin…” út af því að einhver var að bætast við í fjölskylduna eða einhver systirin ætlaði að vera annarstaðar um jólin, en nú vorum við bara þrjú. Það var samt alls ekki of mikið af mat (er einhvern tímann hægt að elda of mikið af hamborgarhrygg??). Og eftir kvöldmat fékk ég rétt að aðstoða við að ganga frá matnum, eins og venjulega (í staðin fyrir Elvu planteraða fyrir framan uppþvottavélina var mamma komin í staðin, ég gat ekki farið ein í að ganga frá!). Svo hrúguðum við pökkunum á stofuborðið og hentum pökkum í hvort annað. Það var síðan mjög erfitt að fá mömmu til að opna restina af pökkunum eftir að hún tók upp fartölvuna sem hún fékk frá pabba.

Ég var mjög sátt við jólapakkana þetta árið, ég fékk þrjár bækur (er búin að lesa tvær (önnur var samt svo pínu lítil, maður var ekki lengi með hana)), konfekt og bolla og sturtu dæmi. Svo fékk ég ilmvatn í ,,möndlugjöf” sem ég er enn að venjast, en það er voða bleikt og lyktar alls ekki illa. Ég er samt orðin svo háð bókum þessa dagana, enda líka ágætt að drífa sig í gegnum bækurnar sem mig langar til að lesa áður en ég festist við skólabækurnar aftur. Það er bara svo ótalmargt sem mig langar til að lesa núna en ég gleymi því jafnóðum ef ég skrifa það ekki niður.

Ég fór í bíó með Ingu og Kolfinnu um daginn, við fórum á Yes Man. Hún var bara mjög góð, ótrúlega fyndin og létt. Það er alveg óneitanlega þægilegra að horfa á myndir í bíói en heima í tölvunni, eða í sjónvarpinu. Þegar ég er inni í bíósalnum þá hugsa ég um eiginlega ekki neitt annað en myndina á tjaldinu. Ég gleymi alveg stað og stund. Þegar ég er heima og horfi á bíómynd eða þætti þá verð ég helst að hafa eitthvað annað að gera. Ég er mjög oft að skoða eitthvað annað á netinu (get samt ekki lesið neitt því þá missi ég þráðinn), fer í tetris eða bubbles. Mig langar rosalega til að taka aftur upp á því að prjóna, en ég veit ekki hvað það ætti að vera. En þessi athyglisbrestur veldur því oft að ég naga neglurnar (þær eru reyndar ótrúlega fínar núna, alveg eins og þær voru þegar við vorum í London).

Eftir áramót byrjar svo skólinn, 7. janúar… Verð svo fjóra daga vikunnar í skólanum, verð væntanlega í fríi á föstudögum. Ég er svona aðeins farin að leita að húsnæði á Akureyri, er samt ekkert að flýta mér, en það er ekkert æðislega spennandi að hugsa til þess að fara með rútunni, fyrir utan að það er alls ekki víst að rútan fari í skólann eftir áramót. Og það kostar líka jafnvel meira en almenn mánaðarleiga á herbergi. Ég er búin að fá eitt spennandi svar við auglýsingu sem ég henti inn á dagskrain.is. Svo hef ég líka heyrt um herbergi hjá kennara úr MA sem er alveg spurning um að skoða. En ég er ekkert að hafa áhyggjur, þetta reddast.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.