Ég fór að pæla í því um daginn af hverju ég blogga ekki eins mikið þessa dagana. Er það út af því að ég hef ekkert merkilegt að segja eða er þetta hrein leti. Ég hef svosum alveg gommu að segja en mér einhvern vegin finnst eins og líf mitt sé skipt í nokkra þætti. Það er fjölskyldan, sem svosum aðrir fjölskyldumeðlimir hefðu kannski áhuga á að lesa um og hugsanlega nokkrir vinir (hvað svo sem margir af þeim lesi bloggið), svo er vinnan, sem mér finnst æði og skemmtileg og margir litlir hlutir gerast yfir daginn sem mér finnst fyndið en mér finnst það einhvern vegin ekki nógu merkilegt til að deila með hinum. Það nefnilega snertir fólk sem enginn af vinum mínum né fjölskyldu þekkir og það er eitthvað svo leiðinlegt að útskýra fyrir fólki muninn á þessum og þessum (ég veit t.d. ekki hvað oft ég hef þurft að útskýra fyrir stelpunum á safninu að ég eigi þrjár systur sem allar eiga einn son, það er ótrúlegt hvernig það getur ruglast og það hefur meira að segja gengið svo langt að Elke spurði hvort að Elva væri ólétt…). Og já, ég segi þeim frá fólkinu í lífi mínu vegna þess að þau spyrja út í svona hluti. Og þegar þau spyrja hvað ég geri í fríunum mínum þá hef ég lítið annað að segja en að ég eyddi þeim með fjölskyldunni minni. Vá ég er farin pínu út af efninu. En já, svo eru vinirnir, sem ég tala nánast aldrei við, sérstaklega ekki Ingu þessa dagana þar sem við höfum sagt allt sem segja þarf við hvor aðra. Og ég veit að hennar líf er álíka spennandi og mitt þessa dagana, það er það alltaf
Þannig að í rauninni þá einhvern vegin hef ég bara ekkert að segja við mögulega lesendur.
Ég var samt líka að pæla í öðru. Þetta blogg fyrirbæri, er þetta ekki mest táningsstelpur að lýsa helstu atburðum ólgandi félagslífs síns? Mér amk finnst eins og ég sé hálf barnaleg þegar ég fer að lýsa dögunum mínum í einhverjum smáatriðum. Þið vitið: fyrst gerði ég þetta, svo var það þetta og ég hitti þennan og hinn. Eldra fólk fer svo í það að lýsa kannski í aðal atriðum hvað það hefur verið að gera en eyðir meiri tíma í að skrifa pistla um uppbyggilega hluti eins og efnahagsástandið eða vissa stjórnmálamenn o.s.frv. Ég held að ég sé einhverstaðar að brúa bilið. Ég er ekki alveg komin á pistla stigið (nema þetta sé með talið) þar sem ég hef oft ekki myndað mér skoðanir né er ég viss um að mínar skoðanir séu vel þegnar, þaðan af síður er ég viss um að minn lesenda hópur sé hrifin af svoleiðis skrifum (ja, nema kannski eldri systur mínar og Álfhildur (sem er örugglega hálfur lesendahópurinn minn)). Já og eins og ég minntist á áðan þá finnst mér pínu barnalegt að fara í smáatriðum yfir það sem á daga mína hefur drifið. Þess vegna blogga ég ekki oft þessa dagana.
Annars, á öðrum nótum, tveir frændur komnir heim og Magni er ekkert smá upptekinn þessa dagana að fara í heimsóknir og fá heimsóknir og Keli er alveg in awe af þeim (ég gerði mitt besta til að halda þessu á móðurmálinu, en það er virkilega erfitt stundum!). Svo er ættamót um helgina sem ég hlakka alveg semi til að fara á.
Svo verð ég líka að segja, þegar ég var lítil þá þoldi ég ekki að fá hrós fyrir t.d. fiðluleikinn minn, út af því að ég vissi aldrei hvernig ég átti að taka því. Núna samt þá finnst mér alltaf svo gaman þegar Danirnir hrósa mér fyrir dönskuna mína, eða bara fyrir það að tala dönsku yfir leitt (því það eru svo margir sem nenna því ekki), og svo eru sjálfboðaliðarnir alltaf að segja hvað enskan mín sé góð og ég var m.a.s. spurð í dag af hverju ég ætlaði að fara í ensku í haust, ég svo greinilega þarf ekki á því að halda. Mér hlýnar svo um hjartarætur við þessi orð, it just brightens my day