Untouched

Ó hvað það fer í taugarnar á mér trefillinn hjá kennaranum. Mér fannst eins og hann hefði verið frekar jafn en núna er hann svo ójafn og mig langar svo mikið til að labba upp að henni og laga.

Ég hef smá samviskubit yfir því hversu lítið ég lærði um helgina. Þriggja daga helgi og ég las ekki neitt. Ég tók fulla tösku af bókum með mér heim til m&p til að lesa eitthvað en nei, ég eyddi öllum tímanum í tölvuleik. Góð. Ég samt hef alltaf vitað það að ég get ekki lært þegar ég er heima í sveit. Gerði oft þau mistök að fara heim fyrir próf í MA og lærði svo ekki neitt. (Og það eru bara sálfræðilegar ástæður þar að baki sko!) Og það versta er að ég nenni eiginlega ekki að lesa neitt á eftir. En ætli maður reyni ekki að lesa eitthvað. Eftir hádegismat og smá lúr ;)

Ég hef samt eiginlega ekkert uppbyggilegt að segja. Mig langaði bara aðeins til að tjá mig…. Ég er farin að hlakka pínu til afmælishelgarinnar (ekki afmælisins sjálfs, enda plana ég að vera þunn þá), vonandi hefur maður tækifæri til að safna saman gellunum þarna fyrir sunnan (þið gellur hérna fyrir norðan eða austan megið alveg drífa ykkur þangað ef ykkur langar að vera memm), það er nefnilega vísindaferð. Dagsetningarnar sem ég sá gefa til kynna að það verður lagt af stað á fimmtudegi og komið til baka á mánudegi, en ég er ekki alveg viss hversu áreiðanlegar þær upplýsingar eru. Þetta verður (vonandi) svakaleg helgi og ég sé fram á að þurfa að heimsækja ríkið eitthvað aðeins.

Published in: on January 19, 2009 at 11:38  Comments (5)  
Tags: , , , , , , , , , , ,

Það koma vonandi jól

Svo lengi sem ég man eftir mér hef ég verið b-týpa: vakna úldin og er úldin langt fram eftir degi. Hef svo mesta orkuna eftir kvöldmat og langt fram á nótt. Síðustu tvo-þrjá daga hef ég verið að berjast við a-týpuna í mér. Ég fór að sofa um 9 leitið þegar ég kom heim á sunnudaginn og endaði með því að vakna klukkan 6 daginn eftir. Ég var orðin uppgefin um kvöldmatarleitið og ég sofnaði einhverntíman á milli 9 og 10 í gærkvöldi. Aftur vaknaði ég klukkan 6 í morgun og ég er alveg að líða út af núna, klukkan 10. Ég ætla samt að vaka aðeins lengur svo að ég geti sofið til amk 9 á morgun. Ég er líka búin að vera furðulega hress á morgnana. Mér finnst þetta bara furðulegt ástand og alls ekki líkt mér.

Ég komst að því í dag að ég gleymdi að senda jólakortin. Ég er búin að dreifa einstaka kortum hingað og þangað en alla síðustu viku frestaði ég að fara með bréfin í pósthús og ég hreinlega gleymdi þeim í gær og í dag. Ég hugsa að maður sendi bara jólakveðjur á facebook fyrir restina.

Það koma vonandi jól heitir færslan mín og ég svo sannarlega meina það. Ég er búin að vera geðveikt lengi í “alveg að koma jól”-askapi, alveg síðan kveikt var á jólaljósunum í Manchester. Jólaskapið fór dvínandi eftir að ég kom heim, en einstaka jólalag og það að pakka inn örfáum gjöfum hefur aðeins lífgað upp á skapið. Ég er samt ekki alveg viss um að ég komist úr þessu “alveg að koma jól”-askapi þar sem mér finnst enn vera helgin áður en allir fara í frí. Ég er enn að bíða eftir systrum mínum og frændum (og viðhengjum :P ). Mamma meira að segja tók sig til og skreytti jólatréð, sem hefur verið mitt verk síðan ég man eftir mér, annað hvort hef ég hjálpað systrum mínum eða fengið hjálp frá frændum mínum.

Jólatími er líka tími þegar pabbi tekur sem mest af myndum, kannski ekki jafn mikið og hann hefur tekið síðustu árin en hann mun örugglega taka alveg slatta af myndum. Í tilefni þess hef ég ákveðið að rækta bólur. Ég er oftast frekar heppin með bólur og fæ þær afskaplega sjaldan. Núna hinsvegar er ég með tvær bólur í framan, eina á hálsinum og eina á bakinu þar sem hún mun koma til með að sjást. Ég er alls ekki góð í að láta bólur í friði þannig að þær eru allar einstaklega ljótar. Til að byrja með hélt ég samt að ein bólan væri frunsa en mér til mikillar gleði komst ég að því að þetta var bara bóla, en núna gæti ég alveg eins verið með frunsu, þetta er alveg jafn ljótt.

Já, þetta verða alveg einstök jól…

Amnesia

Takk fyrir öll kommentin fólk, ég hef aðeins betri hugmynd núna hverjir lesa það sem ég skrifa. Svo finnst mér líka svo gaman að sjá karlana sem birtast fyrir hvern einstakling inn á svæðinu mínu, þeir eru töff. Ég því miður hef ekki komist að því hvernig ég fæ þá til að birtast fyrir almenning líka. [Edit: fann það eftir frekari athugun :) ]

Úff alveg hreint frábær helgi! Við Inga brunuðum til Reyðarfjarðar til að hitta Herdísi og djamma. Færðin var bara alveg þokkaleg á leiðinni þangað og við skemmtum okkur við að hlusta á ’80s og ’90s tónlist á leiðinni. Um kvöldið fengum við dýrindis mat sem Adam eldaði, nammi nammi hamborgarhryggur. Og það var meira að segja forréttur og alles. Svo tók við drykkja og stelpustund þar sem Adam flúði staðinn til að djamma með vinnufélögum eða eitthvað svoleiðis. Við drukkum, máluðumst, slúðruðumst, trúnóuðumst og horfðumst á Ace Ventura: When Nature Calls með commentary frá Herdísi :P Þetta var bara gaman. Þokkalega vel í glasi fórum við á Café Kósí, aðal djammstaðinn á Reyðarfirði. Þar var dansað og drukkið og aumingja Herdís fékk bláan drykk yfir sig alla. Við Inga komumst að því að pikk-up línan í bænum var ,,hérna, má ég kasta fram einni spurningu….” Já þegar við heyrðum þetta í annað skiptið hlógum við að aumingja gaurnum og hann leit hálf skömmustulega út, þó svo að það sé spurning hvort að það hafi verið okkur að kenna.

Gærdagurinn var pínu þunnur, ég vaknaði með ógeðslega beinverki í mjóbakinu (mamma segir að þetta hafi verið taug að klemmast og þess vegna er ég með strengi í dag) en blessunarlega var ég laus við hausverk svona framanaf. Við Inga ,,drifum” okkur á fætur og lögðum af stað heim. Þetta dríf tók kannski 3-4 klukkutíma…. Leiðin heim var ekki alveg jafn skemmtileg, ógeðslega mikil hálka og stórhættulegur rútubílstjóri stefndu lífi okkar í hættu, en við komumst heilar til byggða. Ég var gjörsamlega uppgefin þegar ég kom heim, lagðist upp í rúm með tölvuna til að skoða blogg og þegar ég var farin að dotta yfir einu blogginu slökkti ég bara á tölvunni og fór að sofa. Klukkan var rétt rúmlega 9. Ég er heldur ferskari í dag, vaknaði mjög fersk um miðnætti, fannst ég vera algjörlega búin að sofa nóg en ákvað að sofa aðeins lengur. Vaknaði aftur klukkan fjögur í nótt en aftur fannst mér þetta heldur snemmt til að fara á fætur. Vaknaði enn einu sinni rúmlega sex og ákvað að ég nennti þessu sko ekki lengur, kveikti á tölvunni og skoðaði facebook á meðan ég hlustaði á Stephen Fry lesa Harry Potter. 

Ég verð eiginlega að ljúka þessu á að þakka Ingu og Herdísi fyrir frábæra helgi, þakka Adam fyrir frábæran mat og Herdísi aftur fyrir ógeðslega nammi góða lakkrístoppa.

I’m Only Sleeping

Jæja, nokkur komment fékk ég á seinustu færslu, but then again þá voru þetta sömu manneskjurnar sem voru nú þegar búnar að kommenta á síðunni. Takk fyrir það Edda og Inga :) Þið hin megið bara skammast ykkar, ég veit að þið kíkið hingað inn (veit kannski ekki nákvæmlega hver ,,þið” eruð, en það eru komin 39 innlit í dag, meira en það sem við Inga fengum saman á weltreise… Declare yourselves!).

Nú man ég ekki hvað ég sagði í síðustu færslu… Jújú, Ragna hélt áfram að baka í morgun. En samt fyrst, ég fékk ógeðslegan hausverk í gærkvöldi (var samt með hann í allan gærdag en ég var bara of upptekin til að vera ekki sama) og ég gat ekki annað en velt fyrir mér hvort að ég væri með mígreni þegar ég barðist við ógleðina og sársaukann með köldum rökum þvottapoka, því ekki voru til verkjatöflur á heimilinu. Svo vaknaði ég í morgun/nótt klukkan 4 og gat ómögulega sofnað aftur. Ég bara dundaði mér eitthvað í tölvunni þangað til að mamma og pabbi fóru í vinnuna, þá fór ég fram og kveikti á ofninum. Þar skellti ég sörudeiginu í form og henti inn í ofn á meðan ég gerði mér einhverskonar omilettu. Eftir langan tíma fannst mér svo að sörukakan hlyti nú að vera tilbúin og tók hana út. Ég held samt að hún hafi verið pínu of lítið bökuð í miðjuna. Svo tók ég mig til og gerði piparkökurnar, en þar sem ég fann ekki formin þá fengu kökurnar að vera allar hringlaga. Þar náði ég að brenna fyrstu plötuna í kolamola, en það sem kom á eftir er held ég alveg ætt. Ég samt var of löt til að fara í kókoskransana. Ég líka dundaði mér heillengi í að gera söruköku og vonandi verður hún góð… Ég samt eiginlega þoli ekki að gera sörur núna og þegar ég var að gera piparkökurnar óskaði ég þess heitt að hafa Elvu og Magna með mér (eða Elvu til að gera kökurnar og Magna til að hjálpa mér að fylgjast með og smakka). En þetta hafðist og ég er eiginlega bara fegin að vera bara með fjórar sortir, þetta er farið að síga á þriðja dag í bakstri, úff…

Ég fór líka og kíkti á póstinn í hádeginu, það var bara skemmtilegur póstur til mín :) Þarna fékk ég stórann pakka frá Snæfríði, sem var ekki alveg jafn stór þegar ég tók hann úr kassanum og hinum kassanum og tók blöðin frá. Svo fékk ég líka bréf frá Háskólanum á Akureyri, úff hvað þeir voru ekki lengi að fara yfir umsóknina mína. Ég má semsagt mæta 7. janúar, get haft Ingu mér til halds og trausts fyrsta daginn þar sem við erum innan sömu deildar (eða ekki í raunvísindum eða eitthvað) og á að mæta með fartölvu. Gaman það. Nú þarf ég bara að fara í að athuga með rútuferðir í bæinn, ég held að Rúnar frændi sjái um þetta. Úff það gæti samt orðið frekar dýrt…

Já, ég ætlaði nú ekki að segja meira, ekki sem ég man eftir og það er ekki svo mikið búið að gerast hjá mér síðasta sólahringinn. Nú ætla ég bara að horfa pínu á QI og fara að sofa…

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.