Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:
Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.
Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)
Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi
Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.
Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.
Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.
Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.
Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.
Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.
Í júlí bókuðum við Inga loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.
Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).
Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga.
Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny).
Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).
Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.
Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…
Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.