Supermassive Black Hole

Long time, no blog…

Já já, ég er í einhverju skrítnu skapi í dag. Ég er rosalega hress eitthvað, þrátt fyrir aðeins tveggja tíma svefn í nótt (fullur af draumum, urr…)! Ég nefnilega var með ömurlega magakrampa í nótt, ekki gaman. En, um helgina ætlar Ragna að vera rosa rosa dugleg:

Hún ætlar að…

  • Reikna alveg heilan helling fyrir aðferðafræði próf
  • Skrifa ca. 200-300 orð fyrir aðferðafræði rannsóknarskýrslu
  • Skoða töflur fyrir sömu skýrslu og hugsanlega reyna að segja einhver falleg orð um þær
  • Fara í ræktina í dag, á morgun og á sunnudaginn (klukkutíma í dag, hálftíma á morgun og hinn)
  • Heimsækja óléttu systur mína
  • Lesa eina sögu eða svo
  • Kannski jafnvel lesa í sálfræði
  • Vera kát og hress og bjartsýn :)

Já, svona ætla ég að vera dugleg. Það er samt lítil rödd in the back of my mind sem segir mér að ég eigi ekki eftir að vera svona dugleg, en hey, ég kláraði að lesa 6 kafla í AÐF og einn í ALM í þessari viku þó svo að ég vissi að ég gæti mögulega frestað því þangað til að helgin kæmi! Þess vegna hef ég alveg ágæta tilfinningu gagnvart þessu plani.

Ég verð samt að segja, ég er búin að lesa alla kaflana fyrir næsta hlutapróf í AÐF og fara í gegnum mest allt í SPSS (forritið sem við eigum að nota og þekkja) og mér finnst ég skilja þetta allt, þetta er rosa mikið straight forward, en mér finnst eins og allir í kringum mig séu að stressa sig svo mikið yfir þessu að ég er að pæla hvort að eitthvað sé að fara fram hjá mér. Ég verð reyndar líka að segja að þessa fáu tíma sem ég hef mætt í þá hef ég oftast setið og hlustað á kennarann og hugsað “shit” en þegar ég les kaflann þá finnst mér þetta ekkert mál. Mér líka finnst kennarinn tala rosa mikið eins og hún sé að tala við eintómar ljóskur. Ég á erfitt með að hlusta á kennara sem tala bara við heimska  fólkið (eða þúst, fólki sem skilur ekki einföldustu hluti) því að þegar þeir byrja að útskýra þá finnst mér þetta flækjast. Þá fíla ég mig heimska. Og það er ekki gaman. Reyndar gerir bókin þetta líka (og þegar ég hugsa út í það þá finnst mér pínu kaldhæðnislegt að kennarinn sagði í byrjun að bókin “talar niður til okkar” – það væri hennar helsti galli…) en það er auðveldara að lesa aftur og aftur og aftur útskýringarnar í bókinni en að þurfa að ákveða hvaða útskýringu maður vill hlusta á hjá kennaranum… Eða æji, ég er eiginlega bara frekar fegin að ég er ekki búin að mæta neitt rosa mikið (en það kemur svosum í ljós eftir mánudaginn hvort að það hafi borgað sig :P )

Oh ég sver það, ég held að ég verði að fara að taka mig á í blogginu, ég er bara með enga síu þegar kemur að því að skrifa á bloggið, ég læt bara allt flakka. Eða svona næstum allt. Þetta minnir mig pínu á eina bekkjarsystur mína úr MA :P

Jæja, ætli þetta sé ekki ágætt í bili

Published in: on March 13, 2009 at 12:44  Comments (1)  
Tags: , , , , , , ,

Never Think

Ég er búin að ákveða mig, já eða ég er búin að ákveða mig í dag, ég hef á tilfinningunni að þetta eigi eitthvað eftir að breytast því að allt breytist á endanum finnst mér.

Þegar ég er búin í skólanum ætla ég að vinna eins og mó fó og skemmta mér jafn mikið. Það stendur til að árgangurinn hittist og liggji úti rétt fyrir 16. júní, svo er náttúrulega júbíleringin þar sem maður fær að taka hvíta kollinn af (og verður ekki lengur nýstúdent :( ). Svo á ég náttúrulega 5 ára útskriftarafmæli úr Hafralækjarskóla og við ætlum að hittast og skemmta okkur. Ég nenni líklegast ekki á Hróaskeldu (kannski næst samt) en það er spurning hvort að maður skelli sér til Eyja, maður er búin að ætla sér þangað síðastliðin fjögur ár eða svo. Svo verður vonandi eitt ættarmót eða tvö.

Næsta haust ætla ég bara að spila eftir hendinni, ætla bara að vinna eins lengi og þær vilja hafa mig á safninu, svo held ég að ég bara geri eitthvað skemmtilegt. Heimsóknir til Noregs, Danmerkur og Bretlands er alveg inn í myndinni, veit um nokkrar systur sem hugsanlega vilja lána manni sófa eða dýnu. Kannski maður bara fari á couchsurfing og fari bara þangað sem hugurinn girnist ;) Ég meina, ég hafði það af í einn og hálfan mánuð í Bretlandi þegar pundið var sem hæst á bara sumarlaununum mínum, þar með talið gisting (sem er kostnaður sem gæti minnkað ef ég fæ sófapláss) þannig að ég get eflaust gert eitthvað skemmtilegt fram að jólum.

Eftir jól… hugsanlega lýðháskóli, eflaust í Danmörku. Kannski verð ég heppin og vinn í lottói og ferðast meira, eða heppin á einhvern annann hátt. Hver veit, ég ætla ekki að plana svona langt fram í tímann. Segjum bara að lýðháskóli sé plan B.

Þangað til ætla ég að byrja aftur á umsóknarferlinu sem ég fór í gegnum í fyrra sumar, ég ætla að redda mér eitt stykki IELTS eða TOEFL prófi og sækja um í ensku (bókmenntir og creative writing). Yes sir, það er planið eins og er.

En að öðrum fréttum, ég var að uppgötva það að ég er búin með 9 vikur í skólanum og eftir standa 6 vikur (7 vikur með páskafríi) þangað til prófin byrja. Oh hvað það er gott að vita að ég er svona nánast komin yfir hæðina, nú er þetta bara niður í móti. Reyndar er þessi eina og hálfa vika bara brjáluð, byrjaði á sálfræðiprófi á fimmtudaginn (fokk), þurfti svo að skila verkefni í gær (við byrjuðum á því á sunnudaginn, það var frekar misheppnað), próf á morgun (based on common knowledge en maður þarf samt að kunna hugtökin á þessi common knowledge…), klára tippaviðtal fyrir föstudaginn og gera fyrirlestur og svo flytja fyrirlesturinn á mánudaginn. Svo er viku frí fyrir næsta aðferðafræðipróf. Svo fer bara að styttast í að Valdís eigi að eiga og Edda kemur heim með sína fjölskyldu og svo (fáránlega stutt) páskafrí :D og þá er geggjað stutt í lokapróf og þessum hræðilega vetri (með nokkrum undantekningum) verður lokið.

Gluggar

Hversu kjánalegt er þetta…

Þegar ég var yngri var ég ekki hrifin af því að hafa gluggann í herberginu mínu opinn, á veturna varð alveg hrikalega kalt (ofninn gerði ekki shit) og á sumrinn fyltist allt af flugum, köngulóm og öðruvísi kvikindum, aðalega út af því að það var blómabeð beint fyrir utan gluggann, og ég þoli ekki svoleiðis.

Ég flutti til Valdísar og glugginn þar var ónýtur, þ.e. að það var varla hægt að opna hann og ef manni tókst það kraftaverk þá var ekki hægt að loka honum aftur.

Ekki gat ég haft gluggann opinn í Skuggagilinu á seinni önninni þar sem að Kisi leitaði allra leiða til að komast inn í íbúðina okkar. Stundum var ég með smá rifu en var fljót að loka þegar Kisi byrjaði að væla.

Nú er ég komin í mjög gott húsnæði, það er vetur þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur yfir pöddum og ég er á þriðju hæð þannig að flækingskettir stökkva ekki inn um gluggann minn. Afhverju er ég ekki stanslaust með gluggann opinn (mér finnst það í alvörunni þægilegra en að hafa hann lokaðann sko!)? Jú, ef ég er að hlusta á eitthvað í tölvunni þá verð ég eiginlega að loka glugganum því það er svo mikil umferð fyrir utan. En það sem er eiginlega ennþá verra er helvítis reykingastibban sem læðist inn um gluggann þegar allt reykingafólkið (sem virðist vera í næstu íbúð við hliðina, neðan og ofan (ekki það að ég er bara búin að staðfesta íbúa íbúðarinnar við hliðina) stekkur út á svalir til að reykja, sem er oft. Þá fæ ég hausverk. Ég þoli ekki reykingafólk og ég hef aldrei verið nálægt jafn mikið af reykingafólki og eftir að ég byrjaði í HA (jú ókei, það reyktu ALLIR í Bretlandi fannst mér…)! Það er alltaf að skreppa út og fá sér smók og ég höndla það varla þegar það kemur inn úr kuldanum.

Reykingar eru uncool!

Published in: on February 24, 2009 at 16:20  Leave a Comment  
Tags: , , , , , , ,

Hmmm…

Mamma kom í bæinn í dag og ég fór með henni í gegnum password og username flóðið sem fylgir því að vera í Háskólanum á Akureyri. Við fórum svo í bæinn og ég græddi nýja skó (ég var eiginlega komin í gegnum hina skónna) og eitthvað af vistum. En þegar ég sat með mömmu í skólanum þá allt í einu sá ég ákveðið munstur… here goes:

Grunnskóli – mamma er kennari, kenndi mér m.a. heimakrókartíma, heimilisfræði og handavinnu.

Menntaskóli – Valdís er kennari, kenndi mér samt bara einn áfanga, en samt…

Háskóli – alveg ákveðin framför en samt, mamma er núna orðin samnemandi minn (við erum samt ekki nálægt því í eins námi eða neitt)!

Ég bara fæ ekki að vera alveg ein í skóla… Það er spurning hvað gerist næsta haust þegar ég fer suður (ég ætti kannski að íhuga nám í Manchester, eða elta Eddu hvert sem hún mun fara…) Kannski er það bara ég sem elti mitt fólk? Ég var samt búin að ákveða að fara í MA áður en Valdís sótti um starfið og ég vissi ekki af því að mamma ætlaði í nám í HA fyrr en eftir að ég sótti um!

Published in: on January 9, 2009 at 18:38  Comments (1)  
Tags: , , , , , , , , , , , , , ,

2009, trúiru því??

Já, nýtt ár komið. Ég sem var rétt farin að venjast gamla árinu. Ég held að það sé samt tími til að líta yfir farinn veg:

Ég byrjaði árið á að plana heimsreisuna í samráði við Ingu og Snæfríði. Þá stóð enn til að fara til New York um áramótin og oh boy, that sure has changed. Ég kláraði næst síðustu önnina mín í MA, náði prófunum mínum og varð loksins stúdent í þýsku og frönsku.

Snemma í febrúar out-smart-aði ég nágranna mína og sýndi einstaka hæfileika í að losa bíl úr skafli. Nokkrum dögum seinna átti ég eitt besta afmæli ever, fékk kökur og gott, djammaði með stelpunum, fór út að borða með fjölskyldunni. Fyrst núna er ég farin að jafna mig á áfallinu að verða tvítug (og farin að kvíða næsta afmæli…)

Nám- og starfskynningin setti öll námsplön úr skorðum hjá mér. Fyrir þessa ferð var ég alveg búin að ákveða að fara í sálfræði, en nú langaði mig að fara í fatahönnun, ensku (eða annað tungumál), kennarann… svo ótal margt. Skemmtilegt samt hvernig lífið fer í hringi :P

Í lok febrúar fékk ég mér nýja tölvu þegar hin gaf algjörlega upp öndina.

Mamma og pabbi buðu mér til Köben um páskana í staðin fyrir útskriftar veislu. Ég átti góða stund heima hjá systu, Dodda og Hrafnkeli. (Miðað við færsluna sem ég skrifaði 15. mars þá hefur Hrafnkell fullorðnast ekkert smá síðan þá!!) Ég fór í dýragarðinn hans Kela og heimsótti Carlsberg.

Ég fór í fyrsta skipti til Frakklands. FER óvissuferðinni var heitið til La Rochelle ásamt Snow, Silju og Dagnýu. Ég brann voða fallega og varð ástfangin af bænum. Einhvern daginn mun ég fara þangað aftur.

Elva gifti sig og hélt smá gathering heima hjá mömmu og pabba. Það er frekar skrítin tilhugsun að hún sé orðin gift kona, en Jorrit er fínasti maður, verst að hann þurfti að stela henni og fara með hana til Bandaríkjanna.

Í lok maí kláraði ég loksins námið mitt í MA. Dimissio var vel heppnað og elskulegu busarnir okkar fylltu okkur af nammi. Dimissio djammið var svo bara best. Eitt og annað sem maður gerði í síðasta sinn, manni fannst eins og lífið væri á enda þessa síðustu daga í MA. Svo var bara útskrift 17. júní!! Nei sorry, brautskráning. Gott veður, fallegt fólk og góður matur. Versta var samt að ég gleymdi að taka Carminuna með mér í bæinn þannig að ég gat ekki fengið alla hina til að skrifa í bókina mína.

Ég byrjaði aftur að vinna á Hvalasafninu í júní og seinna fékk ég vinnu sem guide hjá Norðursiglingu. Ég eyddi sumrinu í að vinna vinna vinna, fór ekki í eina útilegu. Ég fór með danska pólitíkusa um safnið, á dönsku! Svo þurfti ég líka að stökkva á milli báta eitt skiptið, það var mjög merkilegt.

Í júlí bókuðum við Inga  loks miða til London. Ég man ekki nákvæmlega hvenær ferðin okkar breyttist, en núna stóð til að fara til Englands, Frakklands, Þýskalands og svo bakpokast í maí. Við bókuðum líka gistingu (djöfull hefði ég samt verið til í að borga alla gistinguna þá, þar sem pundið hækkaði svolítið mikið í október…) og svoleiðis.

Margt fleira skemmtilegt skeði um sumarið: Edda og Hrafnkell komu í heimsókn, sem lífgaði aldeilis upp á sumarið. Valdís tilkynnti um óléttuna sína. Ég fór í river-rafting með pabba og fleiri ættingjum. Ég sá andanefjur í fyrsta skiptið (og svo sá maður ekkert annað í einn og hálfan mánuð). Ég fór í óteljandi staffapartý, var samt yfirleitt edrú. Ég fór tvisvar suður um haustið með Ingu (og Snow kom örugglega með í annað skiptið).

Loksins kom að því að við Inga flúðum land, auðvitað var það samt rétt eftir að bankakerfið hrundi og maður heyrði fullt af hræðilegum sögum af því hvernig útlendingar tóku á móti Íslendingum. Allir voru samt voða næs við okkur, flestir virtust ekki einu sinni vita af bankaerfiðleikum Íslendinga. Fyrstu tvær – þrjár vikurnar voru alveg frábærar. London var æðisleg þarna í lok október, við Inga kíktum á markaði og skoðuðum garða og bara löbbuðum út um allt. Það var líka frábært að ferðast með Snæfríði, fórum til Derby og skoðuðum heimahaga Mr. Darcy, fórum til Cambridge og skoðuðum háskólana. Versta var samt bara að þurfa að hugsa um peninga alla daga. 

Lífið var ágætt í Manchester, margar ferðir voru farnar í Arndale Center (aðalega samt til að fá okkur að borða) og Royal Northern College of Music, skólann hennar Dagrúnar frænku, til að ofnota netið. Við rétt sluppum við að heimsækja perra til að skoða herbergi og enduðum í hálfgerðu suburb herbergi. Við fórum líka á McFly tónleika, þar sem meðal aldurinn var örugglega 19-20 ára, að meðtöldum öllum foreldrunum sem fylgdu litlu stelpunum (já og homma parinu sem sat fyrir framan okkur). Danny og Tom spiluðu veikir, en bættu það upp við að vera ofur krúttlegir (sérstaklega Danny). 

Ferðinni lauk svo á heimsókn til Köben, ég var þar viku lengur en Inga (enda kannski ekkert voða spennandi að vera lengi hjá annara manna fjölskyldu). Maður gerði svosum ekki mikið, en það var voða næs að fá að vesenast með Hrafnkeli og fara í gegnum flakkarann hjá Eddu og Dodda. Ég fór samt nokkrum sinnum í Fisketorvet, og við Inga kíktum líka í Tivoli (það skemmdi samt pínu að ég var alveg að verða veik).

Letilífið tók svo við þegar ég kom heim. Ég að vísu lagaði eitthvað pínu til, bakaði nokkrar sortir og sótti um í HA. Jólin voru líka fátækleg, við vorum bara þrjú í kotinu. Áramótin voru aðeins stærri, en samt flúði ég staðinn eftir matinn.

Ég skálaði nýju ári heima hjá Ingu og fór svo í ,,partý” til Kolfinnu. Eftir alveg ágætlegt magn af áfengi var haldið í Sjallann og eftir það þá var ég rosalega mikið út um allt. Bókstaflega. Ég dansaði pínu með stelpunum, hljóp svo því ég vildi vera fremst, hljóp svo að finna stelpurnar, hljóp á klósettið, hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi, faðmaði alla, hljóp út um ALLT til að finna stelpurnar, fann þær, týndi þeim aftur en fann þær loks aftur í endan og labbaði með Nönnu og Ingu heim. Ég fór lokst að sofa klukkan 8 og eyddi svo gærdeginum í þynnku (og eiginlega pínu af deginum í dag…). Ég held samt að ég hafi ekki gert neitt voða heimskulegt á djamminu…

Já, það er spurning hvernig þetta ár verður, vonandi verður amk eitt ættarmót, jubilering og eitt skóla reunion. Fjöskyldan verður barninu ríkari rétt fyrir páska, Elva og fjölskylda flytja væntanlega nær Íslandi… Ég held að þetta ár verði bara ágætt þrátt fyrir kreppuna.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.